149. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2018.

vegalög.

32. mál
[17:33]
Horfa

Flm. (Karl Gauti Hjaltason) (Flf):

Frú forseti. Ég mæli með frumvarpi til laga um breytingu á vegalögum, nr. 80/2007.

Frumvarp þetta var áður lagt fram á síðasta þingi, 148. þingi, en hlaut ekki afgreiðslu og birtist nú í óbreyttri mynd.

Meðflutningsmenn með mér á málinu eru fjórir aðrir þingmenn, hv. þm. Ásmundur Friðriksson, Birgir Þórarinsson, Páll Magnússon og Vilhjálmur Árnason, allt þingmenn úr Suðurkjördæmi.

Í 1. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir breytingu á 2. mgr. 8. gr. vegalaga, að þar bætist við nýr stafliður, e-liður, svohljóðandi: „Þjóðferjuleiðir eru hluti af grunnkerfi samgangna eins og það er skilgreint í samgönguáætlun hverju sinni. Til þjóðferjuleiða teljast leiðir þar sem ferja kemur í stað vegasambands um stofnveg og tengir byggðir landsins sem umluktar eru sjó við grunnkerfi samgangna á meginlandinu.“

Í 2. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir breytingu á 1. mgr. 22. gr. vegalaga, sem orðist svo:

„Í samgönguáætlun skal ákveða fjárveitingu vegna kostnaðar við ferjur sem þjónusta þjóðferjuleiðir skv. e-lið 2. mgr. 8. gr. til flutnings á fólki og bifreiðum. Einnig er heimilt að ákveða fjárveitingu til greiðslu hluta kostnaðar við ferjur sem eru mikilvægar fyrir ferðaþjónustu.“

Í 3. gr. er gert ráð fyrir að lögin öðlist þegar gildi.

Frú forseti. Efndanna er vant þá heitið er gert. Um þetta mál hefur verið rætt í Vestmannaeyjum árum saman. Síðastliðið haust gaf ég nokkrum íbúum í Eyjum það loforð að ef ég kæmist á þann vinnustað sem ég er á nú yrði það eitt af mínum fyrstu verkum að leggja fram frumvarp sem hefði það efni sem liggur fyrir, þ.e. að ferjuleiðin til Eyja yrði skilgreind eins og um þjóðveg væri að ræða.

Árum saman hafa samgöngumál á leiðinni til Vestmannaeyja verið til umræðu. Vestmannaeyjar hafa mikla sérstöðu í samgöngulegu tilliti og er mat flutningsmanna að það sé hlutverk hins opinbera að tryggja þangað góðar og greiðar samgöngur á sanngjörnu verði með nákvæmlega sama hætti og hið opinbera stendur straum af rekstri sameiginlegs vegakerfis, hafna og flugvalla.

Leysa þarf þann samgönguvanda sem snýr að Vestmannaeyjum og öðrum byggðum eyjum við landið. Þær eyjar sem búseta er í árið um kring eru um þessar mundir fjórar talsins, Heimaey í Vestmannaeyjum, Grímsey úti fyrir Eyjafirði, Flatey á Breiðafirði og Hrísey á Eyjafirði. Til allra þeirra eyja ganga ferjur en skort hefur þjónustuskilgreiningar á þeim ferjuleiðum, svo sem hversu tíðar ferðirnar eigi að vera, hvernig skip þau sem notuð eru í siglingarnar skuli útbúin, með tilliti til þess að oft er þetta eini samgöngumátinn sem íbúum á eyjunum býðst til að komast og ferðast upp á meginlandið.

Markmið frumvarpsins er að ákveðnar ferjuleiðir falli undir skilgreiningu vegalaga á þjóðvegum vegna sérstöðu sinnar. Lagt er til að þjóðferjuleiðum verði bætt við skilgreiningu vegalaga á þjóðvegum. Undir þá nýju skilgreiningu falla þá ferjuleiðir sem tengja byggðar eyjar við grunnvegakerfi landsins.

Frú forseti. Í máli 4904/2007 fjallaði umboðsmaður Alþingis um kvörtun yfir gjaldtöku vegna afnota af ferjunni Herjólfi, sem sigldi á þeim tíma milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar, og hækkun Eimskipafélags Íslands á gjaldskrá ferjunnar í ársbyrjun 2007. Var því m.a. haldið fram að Herjólfur teldist þjóðvegur í skilningi vegalaga. Umboðsmaður komst m.a. að þeirri niðurstöðu að ferjur yrðu ekki skilgreindar sem þjóðvegir, hvorki samkvæmt gildandi vegalögum né eldri vegalögum og yrðu því ekki felldar undir það hugtak. Auk þess taldi umboðsmaður að hvorki yrði ráðið af ákvæðum eldri vegalaga né gildandi laga að Alþingi hefði litið svo á að ríkinu væri skylt að standa að rekstri á ferjum með sama hætti og að uppbyggingu og viðhaldi þjóðvega. Umboðsmaður tók fram að Herjólfur gegndi mikilvægu hlutverki í samgöngum milli Vestmannaeyja og annarra hluta landsins og hefði það hlutverk sem væri að nokkru marki eðlislíkt því hlutverki sem vegir hefðu almennt í samgöngum hér á landi. Þrátt fyrir þau orð í áliti umboðsmanns var það niðurstaða í áliti hans að það atriði eitt og sér leiddi ekki til þess, að virtum ákvæðum vegalaga, að litið yrði á ferjuna sem „þjóðveg“ milli Vestmannaeyja og lands í skilningi vegalaga. Benti umboðsmaður m.a. á að tekin yrði skýrari afstaða til þeirra skyldna sem hvíldu á Vegagerðinni við framkvæmd 22. gr. vegalaga um rekstur ferja, að það færi þannig fram að gætt væri á hverjum tíma að hagsmunum þeirra borgara sem nýttu þjónustuna.

Það kemur einnig fram í áliti umboðsmanns frá 2007 að hann hafi haft samskipti við ráðuneytið á þeim tíma. Þar kemur fram sú afstaða ráðuneytisins að það fallist á sjónarmið umboðsmanns um nauðsyn á endurskoðun umræddra ákvæða vegalaga og að það yrði haft að leiðarljósi við næstu endurskoðun vegalaga. Vegna mikilla anna í ráðuneytin hefði hins vegar ekki enn gefist tími til að ráðast í þá endurskoðun. Þetta var árið 2007. Það gafst ekki tími til að fara í þá endurskoðun á þeim tíma. Síðan eru liðin 11 ár.

Frú forseti. Í ljósi niðurstöðu umboðsmanns Alþingis er það mat flutningsmanna frumvarps þessa að mikilvægt sé að gera nauðsynlegar breytingar á vegalögum til að taka af öll tvímæli um þann ásetning löggjafans að ákveðnar ferjuleiðir falli undir skilgreininguna á þjóðvegum samkvæmt vegalögum, að vísu undir nafninu þjóðferjuleiðir, enda ekki um eiginlega vegi að ræða.

Frú forseti. Árið 2017 var unnin ítarleg þjónustugreining fyrir Vestmannaeyjabæ og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið af Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri. Þar kemur fram að krafa íbúa um hreyfanleika sé að aukast og fólk vilji geta komist á milli lands og Eyja með sem minnstum fyrirvara og að tíðni ferða sé sem mest. Töluvert er um að fólk fari upp á meginlandið til að sækja sér þjónustu, vinnu og afþreyingu. Auk þess eru fjölmörg fyrirtæki sem treysta á flutninga milli lands og Eyja, svo sem flutning á hráefni fyrir fiskvinnslu og fiskafurðir á markað o.s.frv. Fyrir þá aðila er mikilvægt að engar tafir verði á flutningunum. Einnig kemur fram að tryggar ferjusiglingar séu mikilvægar fyrir aðila í ferðaþjónustu, sem er augljóst hverjum manni.

Gera má ráð fyrir að öll þau sjónarmið gildi jafnt um íbúa annarra eyja í kringum landið sem lög þessi eða lagabreyting tekur til. Í kafla 4.1 greiningarinnar fyrrnefndu er fjallað um þjóðveg á milli lands og Eyja og þar er m.a. lagt til að Vegagerðin búi til sérstakan þjónustuflokk, eftir að ferjuleiðir verði skilgreindar sem þjóðvegur.

Íbúar á eyjum við landið eiga sjálfsagða kröfu til þess að öruggar samgöngur til og frá heimili séu tryggðar af ríkisvaldinu með því að ríkið standi að rekstri á ferjum á skilgreindum þjóðferjuleiðum í vegalögum. Tíðni þeirra samgangna og þjónustustig verði skilgreint eins og ríkisvaldið gerir með aðrar samgöngur um vegi í þjóðvegakerfi landsins. Þannig verði lagðar þær skyldur á ríkisvaldið að halda opnum öllum skilgreindum þjóðferjuleiðum í landinu með ferðatíðni og með því þjónustustigi sem skynsamlegast er talið í hverju tilfelli og boðlegt íbúum á eyjunum á nákvæmlega sama hátt og gert er með þjónustu í vegakerfinu.

Frú forseti. Að lokum legg ég til að frumvarpið verði eftir 1. umr. sent umhverfis- og samgöngunefnd þingsins til umfjöllunar.