149. löggjafarþing — 10. fundur,  25. sept. 2018.

störf þingsins.

[13:49]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Mig langar að gera málefni Ríkisútvarpsins aðeins að umtalsefni og áform mennta- og menningarmálaráðherra um að skerða tekjur stofnunarinnar um a.m.k. 560 milljónir án þess að ljóst sé hvernig það verði bætt þó að fullyrt sé að það verði gert.

Mig langar í þessu sambandi að benda sérstaklega á vandaða greinargerð fjölmiðlanefndar um rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla sem birtist í síðasta mánuði og má nálgast á vef nefndarinnar þar sem farið er vandlega yfir tillögur fyrri nefndar um þessi mál og lagst gegn því að taka RÚV af auglýsingamarkaði.

Vera má að draga megi úr umsvifum Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði, en ég vil leyfa mér að vara við því að öfgamenn með skrýtnar jaðarskoðanir fái að ráða hér ferð þó að háværir séu. Ég minni á að mikill meiri hluti landsmanna vill hafa öflugt ríkisútvarp með óbreytta og fjölbreytta starfsemi og alveg sérstaklega kjósendur VG sem kusu flokkinn ekki til þess að útfæra landsfundarályktanir Sjálfstæðisflokksins.

Það er brýnt að styrkja einkarekna fjölmiðla, en það verður ekki gert með því að veikja Ríkisútvarpið. Vandi hefðbundinnar fjölmiðlunar víða um lönd er út af gjörbreyttu rekstrarumhverfi í kjölfar tæknibyltingar sem hefur gert það að verkum að fólk sækir fróðleik og skemmtun á samfélagsmiðla þar sem efni er jafnvel markvisst komið fyrir í því skyni að villa okkur sýn. Á slíkum tímum verður ekki nógsamlega undirstrikað hve mikilvægt er að hafa fjölmiðil sem fjallar af yfirvegun og vandvirkni um málefni líðandi stundar.