149. löggjafarþing — 10. fundur,  25. sept. 2018.

ópíóíðafaraldur og aðgerðir til að stemma stigu við honum.

[14:06]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Hann Einar Darri var ósköp dæmigerður íslenskur unglingur. Honum gekk vel í skóla, var hvers manns hugljúfi, vinmargur, vinur vina sinna. En hann átti einn óvin og sá óvinur, sem var fíkn, dró hann að lokum til dauða með því að hann tók of stóran skammt af lyfseðilsskyldu lyfi.

Í sjálfu sér má segja að í dag ríki faraldur á Íslandi meðal ungs fólks varðandi neyslu á lyfseðilsskyldum lyfjum. Þess vegna er komið að okkur hér inni, það er komið til okkar kasta, að taka umræðu um þetta mál, taka saman höndum um að finna ráðstafanir sem duga til að stemma stigu við því. Þess vegna er ég mjög þakklátur hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir að hafa tekið svo vel og fljótt í það að taka slíka umræðu með okkur í dag.

Hann Einar Darri er ekki einsdæmi, því miður. Hann er einn af 29 eða 30 ungmennum sem hafa látið lífið fyrir þessum vágesti í ár. Við höfum verið að jarða ungmenni í hverri einustu viku það sem af er ári. Það er óþolandi. Því lagði ég þrjár spurningar fyrir hæstv. ráðherra sem fjalla um það hvað ríkisstjórnin hefur gert til að stemma stigu við þeim faraldri sem nú er uppi.

Ég kannast við það að hæstv. ráðherra setti reglugerð um að takmarka innflutning á lyfseðilsskyldum lyfjum, sem er mjög gott og góð ákvörðun. Spurningin er hver eigi að framfylgja því. Tollgæslan getur það ekki, hún er undirmönnuð og hefur ekki yfir nógu afli að ráða til að taka að sér önnur verkefni en þau sem hún glímir við nú. Lögreglan þarf að sama skapi að forgangsraða verkefnum hjá sér vegna þess að hún er ekki í stakk búin til að sinna verkefnum sínum. Það sem ég vil segja með því er að ef við ætlum að grípa til slíkra ráða, sem eru mjög góð, verðum við líka að tryggja að nægilegt fé fylgi til þess að þær góðu stofnanir sem ég nefndi áðan, og fleiri, geti ráðist að rótum vandans.

Ég held að ég geti fullyrt að ef ráðherra myndi leggja fram við 2. umr. fjárlaga tillögur sem lúta að því að t.d. þær stofnanir og fleiri sem þetta mál varðar fengju aukið fjármagn yrði því mjög vel tekið af þingmönnum.

Þriðja spurning mín varðaði þjónustusamning við SÁÁ. SÁÁ er sá aðili á Íslandi sem hefur hvað lengsta reynslu í að fást við fíknisjúkdóma og hefur sýnt mjög góðan árangur undanfarna áratugi. Meðal annars hefur SÁÁ yfir að ráða deild sem er sérhæfð í ópíóíðafíkn, sem er akkúrat það sem við ræðum.

Þess vegna langaði mig að inna ráðherra eftir því hvort þjónustusamningur við SÁÁ verði ekki örugglega útvíkkaður þannig að meðferð við slíkri fíkn verði enn þá öflug og öflugri hjá SÁÁ en verið hefur.

Mig langar líka að spyrja út í nýframkomnar upplýsingar um að meðferðarúrræði í Krýsuvík verði lokað. Ég tel það mjög alvarlegt mál vegna þess að þar er um að ræða eina athvarfið á Íslandi þar sem fólk sem haldið er fíkn getur verið til lengri tíma, í allt að sex mánuði. Ef við getum orðað það þannig hafa erfiðustu tilfellin, þau sem verst hefur gengið að losna við þennan djöful, fengið þar inni, fengið lausn mála sinna og eignast nýtt líf í kjölfarið.

Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. ráðherra út í það hvort hún hyggist beita sér með einhverjum hætti til þess að úrræðið í Krýsuvík verði áfram opið. Ég segi enn á ný að ég er næstum því viss um að þingheimur myndi taka því vel ef slík tillaga kæmi fram.

Þessi umræða var ekki sett fram af hálfu þess sem hér talar til að benda á einhvern eða reyna að skilja einhvern eftir með ábyrgð, af því að við berum öll í salnum ábyrgð á málinu. Þess vegna finnst mér nauðsynlegt og mjög æskilegt að við tökum núna höndum saman og gerum nauðsynlegar ráðstafanir til að hamla þeirri þróun sem hefur verið svo átakanleg á þessu ári. Ungmennin eiga það sameiginlegt með okkur, hverju og einu, að eiga bara eitt líf.