149. löggjafarþing — 10. fundur,  25. sept. 2018.

vaktstöð siglinga.

81. mál
[15:07]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Það sem verið er að vísa til er að í stað þeirra væri vissulega hægt að nefna lögreglu, tollayfirvöld og aðra þá sem þarna koma að máli. En ég treysti því að nefndin fari ítarlega yfir það og meti hvort skynsamlegra sé að hafa upptalningu á öllum þeim sem hugsanlega koma til greina, eða hvort betur fari á því að vísa með þessum almenna hætti til þeirra sem að málinu koma.