149. löggjafarþing — 11. fundur,  26. sept. 2018.

störf þingsins.

[15:07]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Í gær mátti sjá hjartnæma mynd af tveimur mönnum sem takast þétt í hendur yfir skýrslu sem annar réttir hinum. Þetta eru ánægðir menn að sjá. Myndin lýsir eindrægni og sátt. Eiginlega létti. Þetta eru Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrum umsvifamaður í íslensku fjármálalífi og núverandi fjármálaráðherra, og dr. prófessor Hannes Hólmsteinn Gissurarson, helsti hugmyndafræðingur Sjálfstæðisflokksins á undanförnum áratugum og hvatamaður þess upp úr aldamótum að Íslendingar gerðu landið að lágskattasvæði fyrir fólk sem ekki vill greiða sinn skerf til samfélaga sinna. Ísland yrði afland.

Skýrslan sem hugmyndafræðingur Sjálfstæðisflokksins var hér að afhenda formanni Sjálfstæðisflokksins og var greidd af almannafé dýru verði, fjallar um sakleysi Sjálfstæðisflokksins. Hún fjallar um það hvernig hrunið var ekki Sjálfstæðisflokknum að kenna, flokknum sem stýrði efnahagsmálum þjóðarinnar öll bóluárin, en einkum og sér í lagi og alveg sérstaklega sé hrunið ekki fyrrum formanni Sjálfstæðisflokksins að kenna. Hrunið var heldur ekki bankamönnum að kenna. Hrunið var öðrum að kenna, fyrst og fremst þeim ríkjum þar sem útrásarvíkingarnir okkar hösluðu sér völl.

Virðulegi forseti. Við sem nú störfum í stjórnmálum erum hvorki betri né gáfaðri en þau sem slíkum störfum sinntu á árunum fyrir hrun. Það sem við höfum hins vegar fram yfir þau er vitneskjan um þær hörmungar sem reiðareksstefnan í efnahagsmálum og hömlulaus auðhyggja kallaði yfir land og þjóð. Það er mjög mikilvægt að við drögum réttar ályktanir af þessum atburðum, en það verður ekki gert með því að lesa varnarræður gamalla hrunkvöðla jafnvel þótt greitt sé fyrir af almannafé. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)