149. löggjafarþing — 12. fundur,  27. sept. 2018.

veiðigjald.

144. mál
[17:37]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að þetta sé ekki alveg eins einfalt og hv. þingmaður vísar til, að allir flokkar hafi einhverjar hugmyndir hvað þetta varðar. Ég held að fæstir flokkar hafi talað um sölu á algjörlega skilyrðislausum frjálsum markaði. Þess vegna er ég að spyrja hv. þingmann um þetta. Við erum með ákvæði gagnvart erlendu eignarhaldi, ekki satt? Það hefur áhrif á verðmyndun. Einhverjir hafa nefnt landfræðilegar girðingar. Það hefur að sjálfsögðu áhrif á verðmyndun. Einhverjir hafa nefnt að sett verði þak á hversu mikið má eiga. Það hefur að sjálfsögðu líka áhrif á verðmyndun. Ég spyr hv. þingmann um þetta af því að hann er alltaf að tala um almennan markað.

Fleiri hafa talað um þetta en nú bara spyr ég hv. þingmann hvernig hann sjái þetta fyrir sér. Ef hann talar um almennan markað, er hann þá að tala um algjörlega frjálsa sölu án nokkurra girðinga? Þannig skil ég almennan markað, hv. þingmaður. Eða er hann að tala um að ríkið, við þingmenn, setji girðingarnar og ráði þannig verðinu sem hv. þingmaður er að kvarta yfir að við séum að gera hér? Fyrst hv. þingmaður er svo á móti því, á þetta þá að vera algjörlega girðingarlaust og má þá hver sem er kaupa á þeim lögmálum sem gilda á frjálsum markaði? Þetta finnst mér grundvallarspurning, virðulegur forseti, og ég væri mjög til í að fá svar við henni því að þetta er lykilatriði þegar kemur að því hvernig við hugsum veiðigjöldin.

Að lokum, virðulegi forseti, spyr ég: Skil ég það þá rétt að þegar hv. þingmaður talar um 4,5–5% verði einungis verðið sem fæst fyrir þau veiðigjaldið og hin 95% verði veidd frítt? (Forseti hringir.) Hefur hv. þingmaður þá einhverja áætlun um tekjumissi fyrir ríkissjóð það árið og það næsta og hvernig eigi að koma til móts við hann?