flugvellir og flugvallaþjónusta.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Þór Þorvaldssyni fyrir fyrirspurnina. Við deilum áhyggjum af því að staðan sé ekki betri en raun ber vitni. Við áttum ágætissamtal í vor þar sem við fórum yfir þá stöðu.
Í samgönguáætluninni er einmitt fjallað um ýmsa kosti sem við stöndum frammi fyrir og sumir af þeim kostum hafa ekki verið kannaðir til hlítar. Það er fjallað mjög ítarlega um þetta í samgönguáætlun og ég veit að hv. þingmaður mun geta lesið sér til um það og hlustað kannski á framsögu mína seinna í dag eða kvöld, hvenær sem hún verður, og tekið þátt í umræðum um málið. Þá gefst betra tækifæri en á þessum skamma tíma hér.
Staðreyndin með fjársveltið er að á síðasta ári jukum við framlög til flugsins um einar 340 milljónir, ef ég man rétt. Á næsta ári er verið að auka um 350 milljónir. Stuðningurinn við flugið fer úr 1,8 milljörðum í 2,5 milljarða á árinu 2019 þannig að við erum sannarlega að bregðast við.
Það sem er síðan fjallað í samgönguáætlun er að niðurstaða nefndar sem er að komast í hús, um framtíð innanlandsflugsins, og eigandastefnu Isavia sem unnið hefur verið að í þó nokkra mánuði gæti til að mynda skilað því sem hv. þingmaður var að kalla eftir, að Isavia tæki hugsanlega yfir rekstur millilandaflugvallanna eða í eigandastefnunni kæmu fram áform um að ákveðinn arður yrði greiddur til ríkisins sem rynni til millilandaflugvallanna.
Það er líka rétt að taka þarf upp umræðu við flugfélögin um varaflugvallagjald. Það er augljós ávinningur fyrir flugfélögin og öryggi að það séu öruggir varaflugvellir á Íslandi. Það er ávinningur vegna þess að það er mun ódýrara (Forseti hringir.) að lenda hér innan lands en að hafa varaflugvelli í öðrum löndum og þurfa að bera þar af leiðandi meira bensín.
Ég gat ekki svarað öllum spurningum hv. þingmanns og reyni að gera það í seinna svarinu.