samgönguáætlun 2019--2033.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ásmundi Friðrikssyni fyrir góða ræðu. Mig langar til að koma hér upp til að spyrja þingmanninn út í hana, mér fannst hún áhugaverð. Hann sagði reyndar að hann væri að verða of gamall til að bíða eftir því að vegirnir löguðust og sjálfur var ég að velta því fyrir mér hvort ég ætti að taka til máls. Ég hugsaði: Kannski er ekki neitt gagn í því. Samgönguráðherra er sniðinn þröngur stakkur hvað varðar fjármuni til samgöngumála í fjármálaáætlun. Það er kannski erfitt að breyta því sem ég myndi vilja sjá breytast, eins og hv. þm. Ásmundur Friðriksson kom inn á, með Dynjandisheiði fyrir vestan og tvöföldun vegar á Reykjanesi og annað slíkt sem er rosalega brýnt að verði gert strax en er ekki í kortunum að verði gert strax.
Mig langar að spyrja þingmanninn, af því að hann lýsti yfir bjartsýni á að hægt yrði að koma þessu til leiðar með því að ræða þetta í samgöngunefnd og að breytingartillögur yrðu teknar til greina hjá þingmönnum sem hann nefndi: Hvernig sér þingmaðurinn þetta geta gerast miðað við þann þrönga stakk sem samgönguráðherra er sniðinn í þeirri vinnu sem farið hefur fram og birtist í þessari samgönguáætlun?