149. löggjafarþing — 18. fundur,  11. okt. 2018.

samgönguáætlun 2019--2033.

173. mál
[13:43]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni góðar spurningar. Ég ætla fyrst að staðfesta að ég er mjög opinn fyrir því að við förum þá leið. Ég horfi bara ískalt á ríkisfjármálin og ramminn býður okkur ekki að fara hraðar eins og staðan er í dag. Líkt og ég fór yfir í ræðu fagna ég því að við horfumst í augu við það hvað ramminn heimilar okkur. Við verðum um leið að vera skynsöm og forgangsraða í þágu þeirra markmiða sem lög um samgöngur segja okkur að gera. Að því leytinu er þetta skynsöm og góð áætlun.

Ég er svo hrifinn af orðinu samvinnuleið. Það kemur líka fram í umsögn viðskiptaráðs við fjárlagafrumvarpið, sú hugmynd að við tökum gjöld af einstökum leiðum þar sem það er skynsamlegt að gera. Ég er mjög hlynntur því. Ég ætla að leyfa mér að halda áfram að nota þetta fína orð, samvinnuleið, því að það þýðir einfaldlega að fleiri koma að verkefninu.

Fara þarf í mörg brýn verkefni á höfuðborgarsvæðinu til að takast á við umferðarþunga, til að auka öryggið, Reykjanesbrautin, það eru göng víða, Seyðisfjarðargöng. Þetta eru verkefni sem eru dýr í framkvæmd og við höfum verið með lengi í umræðunni en komast ekki á dagskrá, eins og Sundabraut, nema við förum slíka leið.

Mér finnst það hljóma vel. Þingið hefur samþykkt lög um stofnefnahag og að við förum að færa til eignar eignir ríkisins. Þá fáum við betri mynd af öllum þeim eignum og ættum að geta, ekki aðeins (Forseti hringir.) að bæta endurmat útgjalda heldur líka að skoða fjármögnunina.