149. löggjafarþing — 18. fundur,  11. okt. 2018.

samgönguáætlun 2019--2033.

173. mál
[13:50]
Horfa

Una María Óskarsdóttir (M):

Herra forseti. Hér eru til umræðu tillögur til þingsályktunar um samgönguáætlun, önnur til fimm ára, hin til 15 ára. Það er auðvitað ekkert launungarmál að umferðin hefur mjög mikil áhrif á fólk. Í liðinni viku var kjördæmavika. Þá heimsóttum við þingmenn kjördæmi okkar, ég Suðvesturkjördæmi og hvert einasta sveitarfélag þar, og á hverjum fundi var rætt um samgöngumál og þær áhyggjur sem fólk hefur af vaxandi umferð og umferðarþunga. Á Seltjarnarnesi eru fáar leiðir út úr bænum. Í gegnum Mosfellsbæ, Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð er keyrt til Reykjavíkur og á öllum þessum stöðum hafa menn áhyggjur af umferðinni og fjölgun ferðamanna hefur þar áhrif, umferðin frá flugvellinum í Keflavík fer í gegnum þessa fyrrnefndu bæi, 2,3 milljónir ferðamanna var talað um hér fyrr í dag. Auðvitað hafa menn áhyggjur af þessu.

Það sem mig langar að impra á og veit að hefur verið rætt er það sem maður sér þegar maður er staddur í útlöndum, það eru auðvitað vegir innan bæjanna, en síðan eru lagðir ofanbyggðavegir, eins og þeir hafa verið kallaðir. Hvers vegna er ekki lögð meiri áhersla á að það séu fleiri en ein leið í gegnum bæina, eins og t.d. með ofanbyggðavegum?

Hér í Reykjavík hafa menn að sjálfsögðu miklar áhyggjur af umferð í kringum þjóðarsjúkrahúsið okkar, Landspítala. Við Miðflokksmenn höfum sérstaklega bent á að þjóðarsjúkrahúsið eigi ekki að vera staðsett á þeim stað sem það er í miðbænum heldur eigi það að vera á svæði þar sem er gott aðgengi og ég tala nú ekki um betri aðstaða til að byggja upp heilbrigði þeirra sjúklinga sem þar þurfa að vera.

Varðandi þjóðvegi landsins þá er mikil umferð þar mikið áhyggjuefni líka. Ein af skýringunum á því og það sem ekki hefur verið tekið á er að þegar allir þungaflutningar, öll flutningsþjónusta, voru teknir af sjó færðust þeir upp á vegi landsins. Það er eitt af því sem gerðist og veldur því að það er mjög mikil umferð á vegum landsins, fyrir utan það að ferðamannastraumurinn hefur aukist.

Eitt tengt þessu er að ferðamannastraumurinn er of mikið skipulagður þannig að hann er að stærstum hluta hér á suðvesturhorninu í staðinn fyrir að menn reyni að dreifa umferðinni norður, austur, vestur. Landið okkar Ísland er mjög fallegt og það skiptir máli að dreifa ferðafólkinu um okkar ágæta land.

Ég vil sérstaklega lýsa áhyggjum mínum af því hversu seint Sundabraut og Reykjanesbraut eiga að komast á koppinn, ef þannig má að orði komast. Það er eftir 2024, sex ár. Það er rosalega langur tími. Þessar tvær leiðir skipta mjög miklu máli til að koma fólki til og frá. Ég vil í þessu sambandi vekja athygli á að mér finnst nýstárlegri tillögu hv. þingmanns Miðflokksins, Birgis Þórarinssonar, sem hann setti fram í gær um fjármögnun Reykjanesbrautar og finnst fyllsta ástæða til að skoða hana.

Mér finnst líka sérstakt að í gær þegar hæstv. ráðherra var að kynna samgönguáætlun þá virtust aðrir þingmenn í stjórnarmeirihlutanum, og maður sá það reyndar í fréttum líka í morgun, vera annars staðar að kynna sína samgönguáætlun. Hvað segir þetta? Ég hef áhyggjur af þessu.