samgönguáætlun 2019--2033.
Virðulegi forseti. Ég get ekki annað sagt en að það sé aldeilis fróðlegt að hlusta á túlkanir og söguskýringar hv. þm. Þorsteins Sæmundssonar, en það er svo sem ekkert nýtt að ýmislegt komi fram hjá honum.
Ég vil ræða við hv. þingmann hvort honum fyndist ekki ábyrgt af þeim sem vilja fá meira fjármagn í samgöngumálin að koma með einhverjar tillögur, hugmyndir að leiðum til að reyna að ná fram auknum samgönguframkvæmdum í þeim mikilvæga málaflokki. Ég spyr þingmanninn hvort hann hafi aðrar lausnir en að leggja til eitthvað sem felur í sér „ef“ og „hefði“, ef við hefðum gert þetta við bankakerfið hefði verið hægt að nota peningana. Það hjálpar okkur ekki að fá peninginn núna. Ég spyr hann: Ef okkur tekst að finna fjármuni í ríkiskassanum miðað við þróunina í salnum undanfarin ár og kröfuna um forgangsröðun í margt, eins og við ræddum fyrr í dag um almannatryggingar, um heilbrigðiskerfið og annað, ef okkur tekst að setja 10–15 milljörðum meira í samgöngumálin á ári, eins og samfélagið gerir kröfu um, heldur hann þá að okkur takist að forgangsraða því, ef við finnum þá fjármuni sisvona? Mig langar að spyrja hann að því.
Það er enginn að tala um nýja samgönguáætlun. Við erum að ræða þessa samgönguáætlun. Ef við finnum nýjar leiðir og förum nýjar leiðir þá tekur tíma að hrinda þeim í framkvæmd og gera annað. Það er viðbót við þá samgönguáætlun sem við ræðum. Það getur varla talist upphlaup þótt stjórnmálaflokkur, jafnvel þó að hann sé aðili að stjórnarsáttmála, tali um leiðir og hugmyndir í pólitík sem ekki komu inn í þingið sem ný samgönguáætlun heldur eru bara til umræðu sem leið, sem ábyrg tillaga.