samgönguáætlun 2019--2033.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að koma hér upp og nota orð sem ég notaði ekki. Ég notaði ekki orðið ,,upphlaup”. Og ég notaði ekki orðið ,,óábyrgt”. En hann finnur þetta kannski bara sjálfur, þannig er málið. Það er ágætt ef hann gengst við því. En þetta eru ekki mín orð. Þetta eru hans orð.
Hvernig eigum við að gera þetta? Ég sagði það reyndar áðan. Málið er það að við höfum ýmsar leiðir til þess að fá meira af peningum í ríkissjóð. Ég minni á orðaskipti sem ég átti við hæstv. fjármálaráðherra í fjárlagaumræðu fyrir skömmu síðan þar sem ég benti t.d. á það að umdirstofnanir hæstv. fjármálaráðherra væru þó nokkuð fjársveltar, þ.e. ríkisskattstjóri, skattrannsóknarstjóri, tollstjórinn. Þetta eru innheimtuaðilar á gjöldum ríkissjóðs, þegar álögðum gjöldum, má ég benda á. Það er nú þannig hv. þingmaður, að 1 prósentustig í bættri innheimtu gjalda á Íslandi nemur um 5–6 milljörðum kr. Það þarf ekki að leggja á nýja skatta eða gera neinar aðrar ráðstafanir en þær að styrkja innheimtustofnanir ríkisins til þess að fá þær fram.
Í fimm ár hef ég bent á að sérstaklega hér á höfuðborgarsvæðinu sé svart hagkerfi sem kennt er við Airbnb, skattaskjól. Sem betur fer er byrjað að örla á því að menn séu að reyna að hysja upp það kerfi. Þar er feitan gölt að flá, klárlega. Þannig að ef menn einbeita sér að því, eins og ég segi — þetta er alveg rétt sem hv. þingmaður segir, tækifæri til þess að ríkið yfirtaki banka og geri sér mat úr þeim er því miður liðið, en varað var við því á sínum tíma og er enn varað við því og það er enn allt að koma fram sem við héldum fram um það mál. Þannig að það er engin hókus pókus-lausn.
En það er alveg velkomið að fara með hv. þingmanni nákvæmlega yfir það hvernig Miðflokkurinn vill (Forseti hringir.) endurskipuleggja fjármálakerfið á Íslandi. Það er ekkert hókus pókus í því. Það gæti verið fróðlegt og gagnlegt fyrir hv. þingmann (Forseti hringir.) að fá smáyfirferð yfir það mál. Við erum reiðubúnir hvenær sem er að fara yfir það.