samgönguáætlun 2019--2033.
Virðulegi forseti. Ég tek heils hugar undir með hv. þm. Jóni Gunnarssyni, það eru spennandi tímar fram undan í umhverfis- og samgöngunefnd við að fara yfir báðar áætlanirnar og ræða það sem hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra opnaði á í framsögu sinni, þ.e. samvinnuleiðir í fjármögnun og mismunandi form þeirra og hversu raunhæft er að auka við framkvæmdahraðann og fjárfestinguna í samgöngum.
Við þurfum líka að muna að aldrei hafa verið settir meiri fjármunir í samgöngur en akkúrat núna í þessari áætlun. Við erum einnig að hugsa um getu framkvæmdaaðilanna. Vanda þarf til hönnunar þessara mannvirkja, en vissulega er til mikið fullhannað og skipulagt. Við verðum samt að gæta þess að fara ekki fram úr okkur. Það tekur tíma að undirbúa samgönguframkvæmdir. Það tekur tíma að hanna. Það tekur líka oft og tíðum tíma að rannsaka jarðfræðina og líffræðina og samfélagið til þess að við veljum réttu leiðirnar. Og eftir því sem framkvæmdum og nýrri uppbyggingu vindur fram verða líka ófyrirséðar breytingar sem við gætum þurft að bregðast við. Það verða breytingar á ferðahegðun, við þekkjum það mjög vel. Umferð eykst. Það koma upp nýir áhættukaflar og ný þörf fyrir þjónustu. Eins og ég endaði ræðu á mína áðan vil ég segja að ég tel að það sé mjög mikilvægt að hafa það alltaf í huga að við tökum eitt skref í einu. Ég hlakka til vinnunnar í umhverfis- og samgöngunefnd næstu mánuði.