149. löggjafarþing — 18. fundur,  11. okt. 2018.

samgönguáætlun 2019--2033.

173. mál
[14:39]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég get nú ekki annað heyrt bæði á umræðunum hér um samgönguáætlun og í nýlegri kjördæmaviku og víðar en að það séu allir sammála um að ekki sé nóg að gert í samgöngumálum. Það þarf að lyfta þar grettistaki. Ég hef líka orðið var við það í umræðunum að margir hafa tekið undir það sem hæstv. samgönguráðherra hefur fjallað um alveg frá því að hann lagði fram þessa samgönguáætlun, að það eru til aðrar leiðir, eins og gjaldtaka eða samvinnuverkefni og fleira til þess að auka fjármagn til samgöngumála. Það þarf einhvern veginn að bregðast við því að tekjur af umferð eru að dragast saman.

Ég veit ekki betur en að það séu þær tillögur sem við þingmenn Sjálfstæðisflokksins höfum verið að ræða hér og annars staðar. Það er ekkert annað í gangi en að taka þessa umræðu, taka hana innan okkar flokks, hvað kjósendur okkar vilji gera í þessum málum. Vilja þeir taka upp gjaldtöku til að fjármagna auknar samgönguframkvæmdir til viðbótar við þessa samgönguáætlun? Við erum ekki að kynna nýja áætlun, við erum að leggja til leiðir til að bæta við. Viljum við fara í frekari hagræðingar hjá ríkinu eða sölu eigna eða annað til að fara í þjóðhagslega mikilvægar samgönguframkvæmdir eða viljum við bara hafa óbreytt ástand? Halda áfram eins og er núna?

Við höfum sagt allan tímann að samgönguáætlun sem hæstv. ráðherra leggur fram er mjög skiljanleg og við lýsum fullum vilja til að vinna með hana í hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Við skiljum stöðuna sem ráðherrann er í. Þetta er fjármagnið sem hann hefur úr að spila. Það er meira fjármagn en áður hefur verið sett í samgöngumál. Að sjálfsögðu tökum við þátt í þeirri vinnu.