149. löggjafarþing — 18. fundur,  11. okt. 2018.

samgönguáætlun 2019--2033.

173. mál
[14:41]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Hv. þingmaður verður að virða það við mig þó að ég sé pínulítið ringlaður. En þetta er auðvitað að verða venja í fleiri málaflokkum hérna eins og í heilbrigðismálum, þar virðist heilbrigðisráðherra hafa eina stefnu en Sjálfstæðisflokkurinn aðra. Hér virðist vera uppi sú staða að samgönguráðherra sé að mæla fyrir samgönguáætlun eins og honum ber skylda til en Sjálfstæðisflokkurinn sé kominn af stað í vinnu við einhverja allt aðra áætlun.

Nú get ég tekið undir þau orð hv. þingmanns að auðvitað eru mörg brýn verkefni fram undan í samgöngumálum almennt og mörg brýn verkefni sem munu ekki komast að víða um land, ekki hvað síst á suðvesturhorninu, fyrr en á síðari stigum langtímaáætlunar, 15 ára áætlunarinnar. Þetta vekur vissulega athygli. Maður spyr sig hvort þessi áætlun sem hér er lögð fram og ráðherrann sem slíkur njóti trausts og stuðnings þingflokks Sjálfstæðisflokksins miðað við hvernig vinnubrögðin eru hér. Ég hefði nú haldið að eðlilegi gangurinn á þessu væri sá að menn semdu um þessi mál við ríkisstjórnarborðið og tækju svo vinnuna í þinginu en færu ekki í sjálfstæða fundaherferð um einhverja allt aðra áætlun.

Það er kannski rétt að spyrja hv. þingmann í síðara andsvari: Voru gerðir einhverjir fyrirvarar við samgönguáætlun þegar hún var afgreidd úr þingflokki Sjálfstæðismanna? Nýtur hún stuðnings alls þingflokksins?