samgönguáætlun 2019--2033.
Herra forseti. Þetta eru mjög athyglisverðar umræður. Það er á köflum örlítið erfitt að henda reiður á hvert einstakir þingmenn eru að fara.
Við hlýddum á undan ræðu hv. þingmanns sem talaði síðastur á flokksbróður hans, hv. þm. Vilhjálm Árnason, ræða áætlunina. Hann fór mikinn og taldi eðlilegt að menn fengju að hafa frelsi til að velta hlutunum fyrir sér. Það er nú allt gott um það að segja en hann klykkti út með þeirri spurningu á eftirminnilegan hátt, og var býsna raddsterkur, hvort virkilega væri ætlast til þess að hann kæmi upp og talaði um kjördæmi sitt. Nei, það á alls ekki að tala um kjördæmi sitt í svona umræðu.
Hv. þm. Teitur Björn Einarsson hóf ræðu sína á því að vinda sér beint í eigið kjördæmi og finna þar, ég gat ekki betur heyrt, flest til foráttu núgildandi tillögu að samgönguáætlun. Það kom líka fram í máli hv. þm. Vilhjálms Árnasonar að settir hefðu verið fyrirvarar í þingflokki Sjálfstæðisflokksins við áætlunina.
Ég hlýt að spyrja: Er hv. þm. Teitur Björn Einarsson einn af þeim þingmönnum sem setti fyrirvara? Hvaða fyrirvarar voru það?