149. löggjafarþing — 18. fundur,  11. okt. 2018.

samgönguáætlun 2019--2033.

173. mál
[14:57]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hjó eftir því í orðum hv. þingmanns að hann talaði um hvatningu til hv. umhverfis- og samgöngunefndar um að breyta innri forgangsröðun samgönguáætlunar. Mér finnst það áhugavert. Af hverju ætti samgöngunefnd, án mjög málefnalegra ástæðna, að breyta þeirri forgangsröðun sem landssamtökin t.d. eru búin að samþykkja innan síns svæðis um hver forgangsröðun samgönguframkvæmda sé? Ég skil hins vegar mjög vel að hægt væri að fara hraðar í ýmsar framkvæmdir. Ég kom með þá uppástungu að hægt væri að minnka álag á vegum með þó nokkrum leiðum sem Vegagerðin hefur bent á, sem myndi spara í viðhaldi og slíkum framkvæmdum og losa fé til frekari framkvæmda. Það væri áhugavert.

Ég spyr varðandi þá grunnhugsun að umhverfis- og samgöngunefnd geri breytingar án mjög málefnalegra ástæðna og samtals við sveitarfélög á viðkomandi svæði: Af hverju ætti umhverfis- og samgöngunefnd og í rauninni þingið að breyta mikið út frá þeim samþykktum sem þar liggja fyrir um forgangsröðun samgönguverkefna?