samgönguáætlun 2019--2033.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnin, enda eðlilegt að spurt sé um það atriði sem kom fram í ræðu minni.
Það er svo að landshlutasamtökin á Vestfjörðum, Fjórðungssamband Vestfjarða, hefur einmitt bent á þennan ágalla. Jarðgangagerð, Dýrafjarðargöngin og Dynjandisheiðin, er ein samhangandi aðgerð. Ef ekki verður ráðist í Dynjandisframkvæmdina yfir Dynjandisheiði hafa gárungarnir hent því fram, og kannski ekki að ósekju, að þá væri eins gott að keyra í jarðgöngin og svo yrði eitt risastórt hringtorg í Arnarfirðinum þar sem menn keyrðu aftur til baka. (Gripið fram í.)Þetta (Forseti hringir.) er ekki bara aðhlátursefni því að það væri í raun og veru staðan, a.m.k. yfir alla vetrarmánuðina. Það er samhangandi aðgerð að ráðast í Dýrafjarðargöngin og framkvæmdir á Dynjandisheiði. Það er það sem ég er að benda á.
Í samgönguáætlun kemur fram að þunginn í Dynjandisheiði eigi sér ekki stað fyrr en þremur árum eftir að Dýrafjarðargöngin eru tekin í notkun. Þetta er það sem ég er að biðja þingheim um að skoða, þannig að fjárfestingin í Dýrafjarðargöngum skili sér hratt og örugglega til samfélagsins og landsins alls, að hún hafi einhverja þýðingu. Það er atriði til að skoða.
Ég átta mig á því að ekki verður einfalt að fara í þá innri skoðun en það bíður hv. umhverfis- og samgöngunefndar, að skoða öll þau atriði, skoða hvað hægt er að gera, hvernig málin standa og hvernig þau liggja.
Við höfum líka velt upp kostum til að fara hraðar í ýmsar framkvæmdir, t.d. með samvinnuleiðinni, veggjöldum eða jafnvel að fara að skoða efnahagsreikning ríkisins. Þannig væri hægt að flýta ákveðnum framkvæmdum, stórum þýðingarmiklum framkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu, svo að hægt væri að hraða til að mynda öðrum framkvæmdum úti á landi sem eru mikilvægar.