149. löggjafarþing — 18. fundur,  11. okt. 2018.

samgönguáætlun 2019--2033.

173. mál
[15:12]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Herra forseti. Mig langar í þessari umræðu um samgönguáætlunina að nálgast hlutina út frá aðeins öðru sjónarhorni en helst hefur verið uppi í þessari umræðu. Ég ætla hvorki að ræða um tiltekinn veg né tiltekinn landshluta í ræðu minni. Mig langar hins vegar, þegar farið er að síga á seinni hluta fyrri umræðu, að vekja athygli á og setja í samhengi það sem fjallað er um í kaflanum um markmið og áherslur í tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2019–2033.

Þar er fjallað um það markmið sem er greiðar samgöngur og að stefna eigi að því að samgöngukerfi landsins myndi eina samþætta heild sem þjóni bæði atvinnulífi og íbúum sem best.

Í áherslum sem settar eru til að ná þessum markmiðum er í lið 2.1.3 fjallað um að aðgengi hreyfihamlaðs fólks að mannvirkjum og að þjónustu samgöngukerfisins verði eins og best verði á kosið. Það er gríðarlega mikilvægt að þetta sé hér inni og sýnir að við gerð stórra áætlana, eins og samgönguáætlun er, erum við farin að vinna eftir því að Ísland hefur fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks en þar er einmitt tiltekið að fjalla eigi um málefni fatlaðs fólks í öllum þeim málum sem koma frá ríkinu, í áætlunum og lögum sem sett eru fram og samþykkt.

En það sem mig langar að draga fram er að eins frábært og þetta er, að þetta sé hér nefnt, þarf þetta að ná alla leið, við alla skipulagningu á vegakerfinu og í öllu því sem snýr að samgöngukerfinu í heild sinni. Þetta skiptir máli við alla hönnun, þar með talið hönnun vega, en er þó kannski brýnna og flóknara þegar kemur að því sem snýr að almenningssamgöngum.

Mér finnst mikilvægt að draga það fram — vegna þess að á bls. 31 er fjallað um að í gildi sé samningur milli sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og ríkisins, um tilraunaverkefni á sviði almenningssamgangna — að þeir sem koma að því verkefni verði með augun á þessu atriði. Mig langar að beina því til hæstv. ráðherra sem og hans ágæta starfsfólks í ráðuneytinu að muna eftir því að huga þarf að því að aðgengismálin séu í lagi. Þetta snýr bæði að þeim samgöngutækjum sem fyrir valinu verða en einnig að hönnun á samgöngumannvirkjum, að þau séu aðgengileg til að fólk með ólíkar skerðingar, hvort sem það eru heyrnarlausir, sjónskertir eða hreyfihamlaðir á annan hátt, geti nýtt sér þessi samgöngukerfi.

Þetta skiptir líka máli þegar hugað er að umferðarflæði og því sem snýr að gangandi og hjólandi vegfarendum því að hönnun á göngustígum sem þjóna þeim sem fara um á tveimur jafnfljótum er ekki endilega sú sama og hentar þeim sem ferðast með blindrastaf eða eru í hjólastól. Hjólastígar henta ekki endilega fólki í hjólastól því að fólk á reiðhjóli þolir annars konar halla en fólk sem notar hjólastól til að komast á milli.

Hér þurfum við sem samfélag hreinlega að æfa okkur, að hugsa um þessi mál frá upphafi til enda. Við hv. þingmenn, sem og aðrir sem kjörnir hafa verið í sveitarstjórnir til dæmis, verðum að muna eftir því að þetta skiptir líka máli þegar talað er um samgöngumál og málefni fatlaðs fólks. Málefni fatlaðs fólks snúast ekki bara um umgjörðina í kringum útgreiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins. Eins hrikalega mikilvæg og framfærsla fólks auðvitað er vill heildstæð manneskja taka þátt í samfélagi.

Þetta skiptir líka máli inn í þá umræðu sem verið hefur um fyrirhugaðar breytingar á almannatryggingakerfinu þar sem mikið hefur verið talað um mikilvægi þess að efla samfélagsþátttöku fólks með skerta starfsgetu og ekki síst atvinnuþátttöku fatlaðs fólks og fólks með skerta starfsgetu. Í nýlegri könnun, sem gerð var á styðjandi og hindrandi þáttum í atvinnuþátttöku fólks með skerta starfsgetu, kom í ljós að þeir sem eiga eigin bíl telja sig eiga auðvelt með að komast til og frá vinnustað en strætó og ferðaþjónusta fatlaðra voru hindrun hjá þeim sem ekki eiga eigin bíl og eiga þess vegna erfitt með að komast til og frá vinnu. Þetta hangir saman. Það er þess vegna sem ég vek máls á þessum hlutum hér í umræðu um samgönguáætlun.

En svo er þetta líka hagkvæmt fyrir ríkið, þegar kemur að kostnaði. Eins og með annað er yfirleitt best að huga að endapunktinum strax í upphafi. Það er miklu hagkvæmara að hanna hluti frá upphafi þannig að tekið sé tillit til aðgengismála því að það er svo gríðarlega dýrt að gera breytingar á mannvirkjum á lokametrunum eftir að þau hafa verið byggð.

Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu frekar en vonast til þess að hæstv. ráðherra taki mark á þessari brýningu sem í raun kemur fram í ræðu minni og að við sem þingheimur munum halda áfram að hafa puttann á þessum púlsi.