staða sauðfjárbænda.
Frú forseti. Ég get tekið undir með hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni að það sé kannski þörf á því að Íslendingar verði betri í markaðssetningu. Það má segja bæði um sjávarafurðir sem seldar eru í útlöndum og hægt væri að selja á mun hærra verði, og um landbúnaðinn. Engu að síður þykir mér mjög skrýtið að alltaf sé talað um bændur sem einu stéttina í landinu sem er á almennum markaði og getur ekki starfað á almennum markaði án þess að vera með einhvers konar stórt stuðningskerfi sem byggir á framleiðslu.
Ég hef satt að segja meiri trú á bændum en svo. Ég held að kominn sé tími til að Íslendingar almennt hafi meiri trú á þeim gæðum sem okkar ágætu landbúnaðarafurðir búa yfir og að við hættum að vera alltaf með pólitíska putta í málefnum bænda.
Rétt nálgun er kannski sú að vera með hreinan grunnstuðning sem tryggir ákveðið afkomuöryggi til þeirra bænda sem nota sannanlega viðurkenndar starfsaðferðir og eru með nægilega stórt bú, en láta svo þar við sitja og láta markaðinn sjá um restina. Þá er um að ræða sambærilega tryggingu og önnur lönd í kringum okkur veita bændum. Það er í rauninni nákvæmlega aðferð og notuð er víða um heim. Það er aðferð sem hyglir ekki stórum aðilum fram yfir litla. Það er aðferð sem býr beinlínis til aðstæður þar sem besta hugsanlega vöruverðið fæst, sérstaklega í ljósi þess að nú erum við að fara að flytja inn ferskt kjöt frá öðrum löndum samkvæmt nýrri ákvörðun. Það mun að sjálfsögðu hafa þær afleiðingar að íslenskir bændur munu með einum eða öðrum hætti þurfa að keppa á þessum markaði hvort eð er.