149. löggjafarþing — 19. fundur,  15. okt. 2018.

staða sauðfjárbænda.

[16:29]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (Flf):

Frú forseti. Við ræðum hér stöðu sauðfjárbænda og samning ríkisins um starfsskilyrði sauðfjárræktar. Hvert er helsta vandamál sauðfjárbænda? Í hnotskurn er það of hár framleiðslukostnaður. Stór hluti þess verðs sem neytendur greiða fyrir afurðir rennur til milliliða, ekki til bændanna sjálfra. Varan er of dýr í samanburði við samkeppnisvörurnar og þessar afurðir verða undir í samkeppninni.

Atvinnuvegaráðuneytið lét vinna skýrslu þar sem umhverfi afurðageirans var skoðað. Ráðuneytið gerði samning við ráðgjafarsvið KPMG, að undangengnu útboði, um að gera úttekt á afurðastöðvunum og virðiskeðju sauðfjárafurða. Tilgangur úttektarinnar var að gera greiningu á kostnaði við slátrun, sölu og dreifingu sauðfjárafurða þannig að finna megi leiðir sem geta leitt til lækkunar á sláturkostnaði og aukinnar hagræðingar í greininni bændum og neytendum til hagsbóta.

Þessi skýrsla liggur nú fyrir á vef ráðuneytisins, en hún kom út í júní sl. Í skýrslunni er að finna fjölmargar ábendingar sem horfa til hagræðingar í starfsemi afurðastöðva. Það er ljóst að innan afurðageirans er hægt að hagræða mikið. Nú eru t.d. uppi áform um sameiningu á Kjarnafæði og Norðlenska, eins og fram hefur komið í fréttum. Það mál er í ferli.

Annað sem ég vil minnast á hér líka er óskylt þessu en það eru kröfur til sláturhúsanna. Hvernig væri að létta á kröfum um heimaslátrun svo að bændur geti selt beint frá býli? Er ekki hægt að finna þarna einhvern milliveg? Við erum með bestu og hreinustu afurðir í heimi.