149. löggjafarþing — 19. fundur,  15. okt. 2018.

staða sauðfjárbænda.

[16:31]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Frú forseti. Ég vil eindregið taka undir með þeim sem hafa rætt um tækifærin í landbúnaði. Ég held að þau séu ómæld. Það eru alveg ótrúleg tækifæri fyrir okkar öflugu, góðu landbúnaðarframleiðslu, ekki síst á sviði sauðfjárræktar. En þá verðum við líka að fara að þora að horfast í augu við vandann og, eins og ég gat um áðan, taka plásturinn af því sári sem nú er.

Við þurfum að þora að koma með aðgerðir sem eru langtímalausnir, ekki alltaf skammtímalausnir sem gera ekkert annað en að ylja mönnum um stundarsakir en síðan standa menn alltaf aftur og aftur og aftur, reglubundið á hverju einasta hausti, frammi fyrir vandanum. Það þjónar ekki sauðfjárbændum, það þjónar ekki neytendum né pólitíkinni yfir höfuð. Þess vegna þurfum við að athuga það sérstaklega að fara sem fyrst í aðgerðir er ýta undir jafnvægi í framleiðslu á kindakjöti. Við þurfum líka að athuga að ásetningshlutfallið verði lækkað. Við þurfum að aftengja framleiðsluhvatana, það er eitthvað sem við þurfum að gera. Við þurfum að skoða sérstaklega aðgerðir til að koma til móts við skuldsetta bændur og unga bændur. Við þurfum að koma til móts við þá bændur sem vilja hætta í greininni. Við þurfum að nota ákveðið tímabil á næstunni til að hjálpa bændum að taka þau skref sem þeir kjósa að taka.

Bændur þurfa að vera frjálsari frá kerfinu en þeir eru í dag. Þeir eru múlbundnir innan kerfis sem mér finnst ekki þjóna þeim nægilega vel. Það þarf að fara í úttekt á afurðastöðvakerfinu og ég segi það aldrei of oft að ég held að það þjóni bændum ekki vel, hvað þá neytendum.

Við þurfum að sjálfsögðu að fara í kolefnisjöfnun og önnur umhverfisverkefni. Við þurfum að mínu mati líka að auka rannsóknir, auka fé til nýsköpunarsjóða og t.d. setja á öflugan matvælasjóð sem hægt væri að sjá sameinaðan úr sjóðnum Aukið virði sjávarfangs og Framleiðnisjóði landbúnaðarins.

Tækifærin og möguleikarnir eru ótrúlegir fram undan og við eigum að nýta okkur það. Við eigum að nýta mikinn velvilja og ákveðna samstöðu sem er hægt að ná á þingi ef menn þora einfaldlega að horfast í augu við rætur vandans. Það verður að taka á honum öðruvísi en með skammtímalausnum eins og voru t.d. settar á borð á síðasta ári þar sem þingmenn framsóknarflokkanna þriggja (Forseti hringir.) sem nú eru í ríkisstjórn vildu enn og aftur koma með útflutningsskyldu sem yrði lögð á herðar íslenskum neytendum. (Forseti hringir.) Ég vara við slíkum skyndilausnum (Forseti hringir.) og hvet ráðherra til dáða við að koma með alvörulausnir (Forseti hringir.) til frambúðar fyrir sauðfjárbændur og neytendur.

(Forseti (ÞórE): Forseti vill enn minna hv. þingmenn á að virða ræðutíma.)