149. löggjafarþing — 20. fundur,  16. okt. 2018.

forvarnir.

[14:34]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir þessa mjög svo þörfu umræðu um forvarnir, sem eru auðvitað margvíslegar.

Mig langar að víkja máli mínu að tveimur þáttum er varða forvarnir og vísa þar í afar metnaðarfulla aðgerðaáætlun í málefnum barna og ungmenna sem við í þingflokki Samfylkingarinnar höfum lagt fyrir þingið til afgreiðslu í formi þingsályktunartillögu.

Í fyrsta lagi vil ég minnast á samverustundir fjölskyldunnar sem ég tel fullvíst að eru með betri forvörnum. Samverustundir þar sem börnum og ungmennum er fylgt, þau föðmuð og þeim leiðbeint í gegnum lífið í gegnum súrt og sætt, en kostar í rauninni ríkissjóð sáralítið. Tel ég því einboðið að ríkisstjórnin horfi í komandi kjarasamningsviðræðum af alvöru á þær hugmyndir er lúta að styttri vinnutíma sem og að gera vinnutíma sveigjanlegri, en ekki síður hvernig hægt er að tryggja að foreldrar geti betur sinnt börnum sínum og ungmennum með tilliti til veikinda og/eða fötlunar.

Hitt atriðið sem ég vil benda hæstv. ráðherra á, sem hún getur þá komið inn á borð hæstv. ríkisstjórnar, er jafnræði til íþrótta- og tómstundaiðkunar. Í dag standa sveitarfélögin vissulega að nokkru leyti að slíku en frístundastyrkur sveitarfélaga nær eingöngu að styðja að hluta til við þá mikilvægu forvörn sem slík iðkun er, vegna þess að þegar þátttökugjaldinu lýkur þarf að standa straum af ýmiss konar öðrum kostnaði.

Það er gríðarlega mikilvægt að við hlúum að þeim börnum og ungmennum sem koma frá tekjulægri heimilum hvað þetta varðar. Þess vegna vil ég velta upp þeirri hugmynd að hluti ríkisstyrkja sem renna til íþróttasambanda verði sérstaklega ætlaður börnum og ungmennum tekjulægri fjölskyldna svo þau geti einnig sinnt íþróttaiðkun eða öðrum tómstundum sem rannsóknir sýna að eru gríðarlega öflugt forvarnatæki.