149. löggjafarþing — 20. fundur,  16. okt. 2018.

umboðsmaður barna.

156. mál
[16:13]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef oft mikið að segja en þessari spurningu hef ég ekki svar við því að þessum sal ræð ég ekki heldur forseti þingsins og forsætisnefnd Alþingis. En ég mun bera forsetanum þessa tillögu eða hugmynd og mér finnst sjálfsagt að við ræðum hana ef þessi salur myndi henta. Það kann þá að vera að einhverjar hindranir standi í vegi sem mér er ekki kunnugt um þar sem ég hef ekki forræði yfir þessum sal.