149. löggjafarþing — 20. fundur,  16. okt. 2018.

útflutningur hrossa.

179. mál
[19:10]
Horfa

Þórunn Egilsdóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferð þessa máls, en hjá mér kviknuðu spurningar. Ég veit hversu dýrmætur íslenski hesturinn er og að hann er af sérstöku kyni sem vert er að vernda. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra um viðhorf hans til þess hversu mikilvægur þessi sjóður sé og hversu miklu máli hann muni skipta við ræktun íslenska hrossastofnsins sem við höldum öll mikið upp á.