149. löggjafarþing — 20. fundur,  16. okt. 2018.

útflutningur hrossa.

179. mál
[19:10]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég hélt um tíma að hv. þingmaður ætlaði að fara að tala niður kórónu íslenska sköpunarverksins sem hún dásamaði í okkar fyrri umræðu á þessum fundi, en sem betur fer varð sú ekki raunin. Hv. þingmaður er öflugur stuðningsmaður íslensks landbúnaðar eins og við þekkjum öll.

Ég mæli fyrir þessu máli fyrir hönd þeirra sem hafa með höndum það vandasama verkefni að gæta þess að þetta frábæra hrossakyn standist þær kröfur sem við gerum til þess, standi vörð um erfðafræðilega þætti, og á þeim grunni byggi ég þetta frumvarp, að þeir sem um þessi mál hafa vélað og véla hafa reynt að reka þetta erindi núna í hartnær þrjú ár, ósk til ríkisins um að það gjald sem þeir sjálfir inna af höndum af útfluttum hrossum, tæplega 1.500 hrossum á árinu 2017, hækki um 133%. Ég tel vel að verki staðið hjá þeim sem standa í þessu verki og styð þá heils hugar í þeirra góða starfi. Ég er ekki í vafa um að þessi breyting muni styrkja þau verkefni sem sjóðnum er ætlað að sinna.