149. löggjafarþing — 20. fundur,  16. okt. 2018.

útflutningur hrossa.

179. mál
[19:12]
Horfa

Þórunn Egilsdóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta góða svar. Ég fullvissa hann um að hann þarf ekkert að óttast að ég tali niður kórónu sköpunarverksins, íslensku sauðkindina. Ég fagna orðum hans þar sem hann hefur sýnt að hann ætlar að styðja íslenska hrossakynið. Ég reikna með því að hann standi líka með íslensku sauðkindinni og íslenskum bændum og óska honum alls velfarnaðar í því.