149. löggjafarþing — 22. fundur,  18. okt. 2018.

framtíð íslenskrar peningastefnu, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

[12:27]
Horfa

Smári McCarthy (P) (andsvar):

Herra forseti. Já, það er svo sem alveg til í dæminu að fara þá leið. En það breytir því ekki að jafnvel þótt við værum með ríkisstjórn sem stæði ekki í vegi fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort við færum þá leið, tæki það samt mörg ár að klára þetta, að minnsta kosti þrjú, fjögur, kannski allt upp í tíu ár að komast inn í myntbandalagið. Og þá er ástæða til að spyrja: Eigum við ekki að verja okkur fyrir einhvers konar áföllum í millitíðinni með því að vera með betra fyrirkomulag? Til dæmis að vera með fastbindingu við evru á skriðgengi, eins og Króatía tók upp áður en hún gekk í Evrópusambandið til þess að stilla sig af? Reyndar hafa fleiri lönd farið svipaðar leiðir.

Mér finnst nauðsynlegt að við lögum krónuna vegna þess að krónan er drasl eins og hún er í dag. En við munum ekki geta tekið upp evru eingöngu á augabragði. Þess vegna er ég að leita svolítið að lausnum í millitíðinni.