149. löggjafarþing — 23. fundur,  23. okt. 2018.

staða transfólks í Bandaríkjunum.

[13:39]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ríkisstjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta hefur nú til skoðunar að þrengja skilgreiningu á kyni einstaklinga. Endurskilgreiningin felst í því að Bandaríkjamenn geti einungis skilgreint sig sem karl eða konu í samræmi við líffræðilegt kyn við fæðingu. Þessi áform koma í kjölfarið á ýmsum öðrum aðgerðum Trump-stjórnarinnar sem miða að því að ganga á réttindi transfólks. Þau hafa vakið hörð viðbrögð, ekki síst meðal transfólks og hjá þeim stjórnmálamönnum sem hafa barist fyrir réttindum þess í Bandaríkjunum. Það er hins vegar full ástæða til að þessi áform veki hörð viðbrögð víðar, annars vegar vegna þess að það að höfða á svona ómerkilegan hátt til „við á móti hinum“-togstreitunnar margþekktu snýst yfirleitt upp í útskúfun og jaðarsetningu á viðkvæmum hópum, eins og stefnan virðist vera, og hins vegar og ekki síst vegna þess að það er gömul saga og ný að svona aðgerð, að einangra og ganga á rétt lítilla jaðarhópa sem eru að berjast fyrir tilverurétti sínum og því að fá að njóta mannréttinda til jafns við aðra, endar oftar en ekki í einhverju mun verra.

Virðing fyrir mannréttindum er ein af grunnstoðum utanríkisstefnu Íslands og íslensk stjórnvöld eru málsvarar mannréttinda á vettvangi fjölþjóðastofnana og gagnvart einstökum ríkjum. Okkur hæstv. utanríkisráðherra hefur greint á um ýmislegt mikilvægt í utanríkismálum en það verður ekki af honum tekið að hann hefur reynst ötull talsmaður mannréttinda þó að ég vilji nota tækifærið hér og hvetja hann til enn frekari verka. Hér er sannarlega tækifæri til að setja mannréttindi transfólks á oddinn í málflutningi alþjóðlega. Það er líka vert að geta þess hér að varlega áætlað er transfólk í Bandaríkjunum 1,5 milljónir. Þetta er fimmföld íslenska þjóðin. Menn hafa látið í sér heyra af minna tilefni.

Mig langar til að spyrja hæstv. utanríkisráðherra hvort hann hafi áhyggjur af þessari þróun mála hjá vinum okkar í vestri og hver viðbrögð íslenskra stjórnvalda verði, hvort við munum ekki nota þá rödd sem við höfum — rödd sem er svo margfalt sterkari og áhrifaríkari en stærð okkar þjóðar bendir til eða gæti falið í sér — til að tala fyrir grundvallarhugsjónum okkar um mannréttindi, um valfrelsi og baráttu gegn lagalegu og félagslegu ranglæti.