staða transfólks í Bandaríkjunum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég man ekki eftir því máli sem hv. þingmaður vísar til, þessu sem við erum ósammála um í utanríkismálum, en það kemur kannski. Hvað varðar þetta mikilvæga málefni þá er stefna ríkisstjórnarinnar í þessum málaflokki, bæði transfólks og hinsegin fólks, mjög skýr og henni hefur verið fylgt eftir á alþjóðavettvangi. Eins og hv. þingmaður vísar til eru mannréttindi ein af aðaláherslum Íslands í mannréttindaráðinu. Sömuleiðis erum við, bara svo að dæmi sé tekið, þátttakendur í Equal Rights Coalition, bandalagi 40 ríkja sem berjast fyrir því að hinsegin fólk fái notið mannréttinda um allan heim.
Mannréttindum transfólks er hins vegar því miður víða ábótavant, svo að ekki sé fastar að orði kveðið, bæði hvað varðar viðhorf og löggjöf. Við þurfum því miður ekkert að líta mjög langt til að sjá það. Breytingar þær sem hv. þingmaður vísar til, breytingar sem stjórnvöld í Bandaríkjunum íhuga að innleiða varðandi stöðu transfólks, yrðu afturför ef af yrði. Það stendur til að skilgreina kyn sem óbreytanlegt sem er stór breyting frá því sem bæði opinberar áætlanir og verkferlar innan menntunar- og heilbrigðiskerfa þar í landi miða við.
Bandaríkin hafa verið í hópi forysturíkja á alþjóðavettvangi hvað þetta varðar. Í tvíhliða samráði við samstarfsríki okkar höfum við ávallt tekið upp stöðu mannréttindamála og engin breyting verður á þar, hvorki gagnvart Bandaríkjamönnum né öðrum. Við erum það lánsöm að viðhorf almennings og stjórnmálamanna til hinsegin fólks hefur breyst hratt á Íslandi. Viðhorfið í dag er almennt jákvætt og Ísland er efst á lista yfir þau ríki sem fagna fjölbreytileikanum.
Við skulum samt muna að löggjöf hér er ábótavant en það stendur til bóta, frumvarp um kynlegt sjálfstæði er á þingmálaskrá. Í dag er enn talað um kynáttunarvanda í löggjöf sem skilgreindan geðsjúkdóm en ég á ekki von á öðru en Alþingi veiti þeim umbótum sem við leggjum hér fram brautargengi.