149. löggjafarþing — 23. fundur,  23. okt. 2018.

aðgengi fatlaðra að hópferðabifreiðum.

[14:01]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ég sendi fyrirspurn til hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um aðgengi fatlaðra að hópferðabifreiðum. Það tók mjög langan tíma að fá svarið. Svarið kom. Það var alveg stórfurðulegt og mjög rýrt vegna þess að ábyrgðin á því að hópferðabifreiðar uppfylli skilyrði laga og reglugerða er sett yfir á fatlaðan einstakling. Það er meira en nóg fyrir fatlaðan einstakling eða hreyfihamlaðan að reyna að komast ferða sinna, hvað þá að reyna að príla upp í rútu sem hefur engan búnað til að taka við hjólastólum.

Það er alveg fáránlegt að fólki sé mismunað eftir því hvort það er fatlað eða ekki og það eigi bara að taka séns á því, samkvæmt svari ráðherra, að mæta á staðinn og ef það kemst ekki með þá á að kæra. Það er bara undir því komið hvort rútufyrirtækið eða hópferðabifreiðar er yfirleitt með aðstöðu fyrir fatlaða eða ekki. Þetta er auðvitað alveg fáránlegt, vegna þess að samkvæmt lögum og reglum eiga bifreiðarnar að vera búnar slíkum búnaði. Þessi búnaður á að vera til staðar fyrir einstaklinginn svo að hægt sé að komast um borð í hjólastól. Þeir segja bara: Nei, það á bara að kæra til Umferðarstofu. Ég segi: Á ekki Umferðarstofa að sjá til þess að farartæki séu þannig útbúin að allir komist um borð, hvort sem þeir eru fatlaðir eða ófatlaðir?