aðgengi fatlaðra að hópferðabifreiðum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég held að við séum báðir sammála um að það á auðvitað ekki að mismuna fólki, hvort sem það er í farþegaflutningum með hópferðabílum eða við aðrar aðstæður á Íslandi. Að því er unnið, bæði í löggjöfinni og að því vinna eftirlitsaðilarnir.
Varðandi hópferðabifreiðar þá hefur það verið þannig frá því að lögin tóku gildi að nýjar bifreiðar eiga að vera með þessum útbúnaði en það hefur ekki verið gerð krafa til eldri bifreiða.
Þegar þetta svar við fyrirspurn hv. þingmanns var undirbúið var leitað til Samgöngustofu sem hefur eftirlit með þessu. Samkvæmt þeirra gögnum voru ekki miklar upplýsingar um að þetta væri vandamál. Vissulega hafa þeir gert kröfur um að allar nýjar bifreiðar séu þannig útbúnar að þetta sé í lagi, en þeir hafa ekki fengið upplýsingar frá notendum um að þarna sé pottur brotinn.
Ég hef átt fund með forsvarsmönnum Sjálfsbjargar einmitt um þetta mál þar sem ég fékk upplýsingar um að þeir fengju kvartanirnar. Ég hef beðið þá um að þær kvartanir berist alla leið til Samgöngustofu til þess að menn geti tekið á málum þegar þau koma upp. Það á auðvitað ekki að vera þannig, ég er sammála hv. þingmanni um það, að menn þurfi að taka sénsinn á því þegar þeir mæta á staðinn hvort búnaðurinn sé til staðar. En hins vegar er það rétt að það eru bara nýrri farartækin sem hefur verið gerð krafa á en ekki gerð krafa um að eldri farartækin séu útbúin með þessum hætti eftir því sem ég best veit og hef skilið. Það er mjög mikilvægt að þetta batni frá því sem verið hefur en til þess þurfa upplýsingarnar að komast til yfirvalda svo þau geti beitt sér gegn einstökum aðilum. Það er vitað að sumir af smærri aðilunum gera þetta mjög vel, hringinn í kringum landið, en sumir af stærri aðilunum hafa hins vegar, eftir því sem ég hef verið að fá upplýsingar um, upp (Forseti hringir.) á síðkastið ekki gert þetta með þeim hætti sem við, hvorki ég né hv. þingmaður, getum verið sáttir við.