149. löggjafarþing — 23. fundur,  23. okt. 2018.

aðgengi fatlaðra að hópferðabifreiðum.

[14:06]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Það var ágætt að hv. þingmaður kom inn á flugrútuna eða flugið. Þær upplýsingar sem ég hef er að þegar menn eru komnir inn í flugstöðina sé þjónustan orðin býsna góð, séu menn búnir að láta vita af sér og allt sé þá undirbúið og haft með þeim hætti að það sé boðlegt. Það sé kannski vandinn að komast þangað.

Á þessu svæði er annar þáttur sem við gætum horft á sem lausn á, þ.e. ferðaþjónustu fatlaðra sem er hjá sveitarfélögunum. En hún hættir við sveitarfélagamörkin. En fólk ferðast nú dálítið um yfir sveitarfélagamörk. Það mætti alveg hugsa sér að ferðaþjónusta fatlaðra, sem er á vegum sveitarfélaganna, gerði eitthvert samkomulag um að fara yfir stærra svæði. Í þessu tilviki að Flugstöð Leifs Eiríkssonar þannig að bílarnir væru sannarlega nægjanlega vel út búnir til þess að þessi þjónusta væri boðleg og fyrsta flokks. Ég held að það sé ein leið sem við ættum að horfa á til lausnar á þessu máli.