149. löggjafarþing — 23. fundur,  23. okt. 2018.

framtíð og efling íslenska sveitarstjórnarstigsins.

[15:01]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka málefnalega umræðu og jákvæða í garð þeirrar hugmyndar að efla sveitarstjórnarstigið. Eins og fram hefur komið er það kannski ekki einfalt mál. Sumir segja og ég tek undir það, t.d. með hv. þm. Jóni Gunnarssyni, að styrkja þurfi innviðina. Ef samgöngur eru góðar, nóg rafmagn og fjarskipti og jafn aðgangur að heilbrigðis- og menntamálum skulum við sjá um okkar heimabyggð, segja margir og það er vel skiljanlegt. Á sama tíma horfum við líka á það að sveitarfélögin á Íslandi eru óvenjusjálfstæð, með sína sjálfstæðu stofna, og margir hafa rætt hér um tekjustofna og skiptingu sveitarfélaganna. Tekjur jöfnunarsjóðs eru ekki nema 13% að jafnaði af tekjum sveitarfélaganna en eru t.d. 50% í Noregi. Það þarf líka að fara varlega þarna inn.

Jöfnunarsjóðinn höfum við sem stjórntæki. Ég sagði í ræðu minni og get ítrekað það að á næstu dögum verða settar í samráðsvettvang útfærslur á því hvernig við getum byrjað með einfaldri aðlögun á núgildandi regluverki en engu að síður þarf að taka lögin um jöfnunarsjóðinn upp. Eitt af því sem við munum gera þar er að setja inn vaxtarálag á svæði, t.d. á Suðurnesjunum og sums staðar annars staðar, þar sem íbúum hefur fjölgað mjög á undanförnum árum en framlögin hafa ekki svarað því á móti. Það er mjög mikilvægt að nýta sjóðinn til þess. Ég held að það sé einhver einfaldasta leiðin til þess.

Aðeins hefur verið rætt um íbúalýðræði. Ég held að það sé af hinu góða að auka það. Ég held að ekki eigi að vera hætta á því að með þeim hætti skipti menn sveitarfélögunum í tvennt, í það minnsta ekki ef sveitarfélögin eru nægilega stór. Menn verða svo bara að sætta sig við niðurstöðuna. Það er þá oft hin lýðræðislega niðurstaða einhvers ágreinings.

Varðandi fjölkjarnasveitarfélög og hvort þau eigi að hafa sérstaka fulltrúa í sveitarstjórnum hef ég nú ekki hugsað þangað. Ég hef miklu frekar séð vankantana við þessa fjölmörgu samninga, sem eru á milli 20 og 25, sem hvert einasta sveitarfélag gerir við nágranna sinn vegna þess að það ræður ekki við sín eigin verkefni. Ég hef miklu meiri áhyggjur af umboðsleysinu þar og lýðræðinu hvað það varðar, hvernig menn eru kjörnir sem fulltrúar til að stjórna heilu og hálfu samfélögunum.