149. löggjafarþing — 23. fundur,  23. okt. 2018.

skráning og mat fasteigna.

212. mál
[16:31]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Herra forseti. Ég taldi rétt og skylt að koma hingað upp og gera grein fyrir þeim efasemdum sem ég hef við frumvarpið. Þetta er að vísu ekki í fyrsta skipti sem frumvarp þessa efnis kemur inn í þennan sal. Það náði þá ekki fram að ganga og var engin umræða um það í það skiptið, sem var á 145. löggjafarþingi.

Efasemdir mínar um frumvarpið snúast í rauninni að því að ég vara við að þjóðskrá og í rauninni öðrum aðilum — þetta snýr ekki að þjóðskránni heldur bara yfir höfuð stofnunum eða öðrum aðilum — sé heimill aðgangur að skattframtölum og fylgiskjölum eins og segir í 1. gr. frumvarpsins. Mér finnst hér gengið verulega langt. Ég vara við því fordæmi sem hér er gefið, að heimila í þessu tilfelli annarri stofnun aðgang með beinum hætti, eins og ég skil þetta, að skattframtölum og fylgiskjölum þeirra. Ég hefði talið betur og skynsamlegra að ákvæði væri í lögum um að stofnanir ríkisins sem þurfa á slíkum upplýsingum að halda, eins og hér er verið að tryggja að þjóðskrá fái, og ég tel mikilvægt að hún fái slíkar upplýsingar, en það væri þá gert á grundvelli einhvers konar þjónustusamnings, þannig að tryggt væri að upplýsingarnar væru unnar á vegum ríkisskattstjóra en ekki með beinum aðgangi stofnana eða annarra utanaðkomandi aðila.

Þetta er ákveðið prinsippatriði sem ég er að reyna að halda í. Ég beini því til hv. allsherjar- og menntamálanefndar að huga að því hvort ekki er hægt að fara milliveginn, þ.e. að tryggja þjóðskrá nauðsynlegar upplýsingar en gera það með þeim hætti að skattstjóra, ríkisskattstjóra, sé falið að vinna slíkar upplýsingar sem kallað er eftir en ekki að aðgangur sé veittur með þeim hætti sem hér er gert ráð fyrir.