149. löggjafarþing — 23. fundur,  23. okt. 2018.

skógar og skógrækt.

231. mál
[21:52]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Herra forseti. Erindi mitt hingað upp er aðallega að lýsa yfir ánægju minni með þetta frumvarp sem hér er lagt fram. Það er mjög metnaðarfullt og löngu tímabært, leyfi ég mér að segja, að koma málum í þetta horf.

Mig langar samt í fyrri umferð að spyrja um eitt. Ég hnaut um það í 10. gr. frumvarpsins þar sem talað er um framlög Skógræktarinnar að þar er bætt inn sérstaklega að framlögin séu þar með talið vegna verndar og endurheimtar náttúruskóga. Það er kannski bara vanþekking mín, en ég hefði talið að vernd og endurheimt náttúruskóga félli undir almennt framlag til skógræktar og óþarfi væri að tiltaka það sérstaklega. Síðan fór ég að hugsa áfram, það er spurning hvert það leiðir mann, hvort markmiðið með þessari viðbót væri að leggja meiri áherslu á fjárframlög til verndar náttúruskógum en var í fyrra frumvarpi.

Síðan ef ég skoða áfram athugasemdir við 2. gr. frumvarpsins um skilgreiningu þessa hugtaks, þ.e. náttúruskógur, segir þar, með leyfi forseta:

„Skilgreining hugtaksins náttúruskógur er að mestu leyti sú sama og skilgreining hugtaksins skógur auk þess sem átt er við skóg tiltekinna innlendra trjátegunda sem er til kominn án beinna aðgerða mannsins. Í flestum tilvikum er um birkiskóglendi að ræða.“

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann telji að þetta nýja frumvarp og þá sérstaklega í ljósi þessara breytinga hafi mögulega áhrif á fyrirhugaða vegalagningu um Gufudalssveit sem er á áætlun hæstv. sveitarstjórnar- og samgönguráðherra, eða áhrif á forsendur Vegagerðarinnar fyrir því að mæla með því að vegurinn verður lagður um Teigsskóg. Ég velti þessu fyrir mér. Ég spyr hæstv. ráðherra hvort það sé mögulegt að þetta nýja frumvarp með þessum breytingum, verði það samþykkt, muni seinka enn frekar vegaúrbótum sem heimamenn á sunnanverðum Vestfjörðum hafa beðið eftir svo lengi. Eru einhver tengsl þarna á milli?