skógar og skógrækt.
Virðulegur forseti. Það kemur ekki á óvart að ég og hv. þingmaður deilum ekki endilega sömu sýn á mikilvægi eignarréttar og þess hvort við eigum að hefja okkur upp yfir hann til að horfa frekar á heildina almennt. Um það höfum við oft átt samræður í þessum stól. Bölvun almenningsins, virðulegur forseti, segir hv. þingmaður og er væntanlega að vísa til þeirra svæða sem skilgreind hafa verið sem almenningur, að þar megi að mörgu leyti finna rótina.
Ég ætla að leyfa mér að segja bölvun almenningsins, þ.e. fólksins, hafi verið sterkur eignarréttur. Eigum við að líta til iðnbyltingar þar sem í krafti eignarréttar yfir landi, jafnvel yfir vinnuafli með mjög lítt dulbúnum þrældómi, fór af stað sá mikli bolti sem við erum enn að kljást við, sem er hlýnun jarðar af völdum útblásturs gróðurhúsalofttegunda? Það var ekki vegna þess að einhver svæði væru skilgreint þannig að enginn hefði eignarhald yfir þeim. En almenningur, við getum haft okkar skoðun á svæðunum almenningi.
Að mörgu leyti sé ég eftir þeim svæðum og er ósammála hv. þingmanni um að á þeim svæðum á landinu hafi endilega verið að finna eitthvað sem við þurfum að kljást við í dag þegar kemur að umhverfis- og loftslagsvandamálum, síður en svo. Til dæmis erum við að horfa til þess að við erum að stækka þjóðgarða sem eru loks almenningur dagsins í dag þó að vissulega sé eignarhald ríkisins á þeim nokkuð skýrt.
Ég held að verkefni okkar í loftslagsmálum felist einmitt í því að hætta að hugsa eftir þessum fornu úreltu hugsanabrautum sem mér finnst hv. þingmaður nálgast þetta vandamál. Við þurfum að nálgast það með hagsmuni heildarinnar í huga, ekki hver á eitt ákveðið svæði, eitt ákveðið fyrirtæki og hagnað þess, heldur samfélagslegt markmið okkar allra. Þannig þurfum við (Forseti hringir.) að hefja okkur yfir vandamálið, því að það er svo ærið að ef við ætlum að kljást við það eftir þessum gömlu aðferðum þá bið ég fyrir okkur.