149. löggjafarþing — 24. fundur,  24. okt. 2018.

staða iðnnáms.

[14:52]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Það verður að segjast eins og er að þetta er alveg sérstaklega góð umræða. Innlegg hv. þingmanna eru virkilega góð og ég ætla að fara yfir nokkur þeirra. Ég tek undir að það er auðvitað mjög brýnt að gera iðnnámi jafn hátt undir höfði og þá erum við að tala um það hvernig við ætlum að formgera það. Ég get upplýst hv. þingmann um að við erum að vinna leiðir að því í ráðuneytinu hvernig við getum gert það. Eitt af því sem við sjáum þegar við skoðum og berum saman landshluta og berum saman ríki er að til að mynda í Fjarðabyggð innritast um 33% þeirra sem ljúka grunnskólastiginu í iðngreinar. Það er svolítið merkilegt. Þegar við skoðum óformlega hvað þar er gert öðruvísi ætla ég að nefna nokkra þætti sem hafa komið fram. Í fyrsta lagi er mikið og náið samstarf grunnskólans og framhaldsskólans og viðkomandi grunnskóli reynir að tryggja sem mest val og að uppfylla skylduna. Það nefni ég númer eitt.

Í öðru lagi er mjög gott samstarf á milli framhaldsskólastigsins og atvinnulífsins. Atvinnulífið tekur virkan þátt í og styrkir verulega við þær iðngreinar eða verk- eða starfsnám sem um er að ræða í verkmenntaskólanum eða framhaldsskólanum.

Í þriðja lagi sér grunnskólastigið um að kynna mjög vel fyrir foreldrum hvað er í boði og grunnskólinn fer jafnvel sjálfur út um allt til að kynna og efla þekkingu á iðngreinum.

Í fjórða lagi er kynnt mjög vel fyrir foreldrum hvaða valmöguleikar eru í boði í framhaldinu. Ef allt þetta fer saman er hægt að ná, líka innan lands, mjög góðum árangri. Eitt af því sem ég er að reyna að gera sem ráðherra er að taka þessa góðu reynslu, til að mynda eins og í Fjarðabyggð — þetta er líka annars staðar (Forseti hringir.) en ég nefni hana sérstaklega — og hrinda því í framkvæmd á landsvísu.