149. löggjafarþing — 25. fundur,  25. okt. 2018.

jafnréttismál.

[11:02]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu. Eiginlega má segja að orð hans lýsi því vel hvað misrétti kynjanna á Íslandi er í raun og veru flókin stærð. Það er ekki hægt að smætta þetta misrétti niður í eina prósentutölu, hvort sem við erum að tala um leiðréttan eða óleiðréttan launamun. Þess vegna var t.d. dagurinn í gær helgaður baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og kynferðisofbeldi, því að það er líka hluti af þeirri stóru mynd sem við ræðum um þegar við tölum um misrétti kynjanna. Það endurspeglast líka á vinnumarkaði þar sem konur mega oft þola allt aðra meðhöndlun en karlar.

Ég skil hv. þingmann þannig að hann spyrji hvort óbreytt staða í launamun kynjanna endurspegli metnað ríkisstjórnarinnar. Nei, þessi tala endurspeglar ekki metnað ríkisstjórnarinnar. Ég legg það til, og vona að Alþingi sé sammála mér um það, að jafnréttismál fari yfir í forsætisráðuneytið, ekki vegna þess að ekki hafi verið vel staðið að jafnréttismálum í því ráðuneyti sem hv. þingmaður stýrði eitt sinn, heldur vegna þess að ég tel að við þurfum að horfa á þetta mál á miklu breiðari grunni. Rétt eins og þegar við ræðum risastór mál, öryggismál, loftslagsmál, eru jafnréttismálin alveg jafn stór og varða helming mannkyns. Það skiptir máli að öll ráðuneyti taki höndum saman.

Af hverju var það þannig að þegar sett voru ný lög um leik-, grunn- og framhaldsskóla kom í ljós að í lögum um grunnskóla voru búin að vera ákvæði um jafnréttismenntun frá árinu 1976, fæðingarári mínu svo ég komi aftur inn á það? Ég fékk enga jafnréttismenntun alla mína skólagöngu, enda fór jafnréttismenntun ekki inn í námskrá fyrr en 2011. Það eru ansi margir áratugir sem liðu frá því að löggjafinn setti sér markmið þangað til þau komust í framkvæmd.

Það er nefnilega svoleiðis að af einhverjum ástæðum (Forseti hringir.) virðist þetta misrétti vera það rótgrónasta, eins og John Stuart Mill sagði á sínum tíma, kannski vegna þess að við erum öll aðilar að því með einhverjum hætti. Við erum öll hluti af kynjakerfinu. Þess vegna (Forseti hringir.) þurfum við að vinna að þessu, alltaf, sama hvaða málaflokka við tölum um. Prósentutölur í kynbundnum launamun, sem hér eru mest til umræðu, eru bara einn (Forseti hringir.) lítill kimi af kynjamisréttinu sem við búum öll við. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)