aðdragandi að útgáfu starfsleyfis til kísilverksmiðju Sameinaðs sílikons hf. í Helguvík o.fl., munnleg skýrsla umhverfis- og auðlindaráðherra.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að taka undir það sem hv. þm. Ásmundur Friðriksson kom inn á í ræðu sinni sem ég held að verði að hafa í huga í allri skoðun málsins. Eins og málið blasir við að ég held flestum sem það skoða hefur ónákvæmum upplýsingum, rangfærslum, svikum og prettum verið beitt á flestum stigum málsins hvað varðar að koma málinu áfram. Hv. málshefjandi, Hanna Katrín Friðriksson, kom inn á það á þeim nótum að röngum upplýsingum hafi verið komið á framfæri við stofnanir ríkisins við flest tækifæri þar sem eftir þeim var óskað. Ég sé að hv. þingmaður nikkar til mín þannig að ekki var mikil skekkja í þessu.
Þetta er auðvitað grafalvarleg staða. En svo að maður komi stofnunum nokkuð til varnar í málinu þá er ekki einfalt fyrir stofnanir hins opinbera að verjast nálgun sem þessari því að þetta er fordæmalaust, eins og hæstv. ráðherra kom inn á, og við verðum að vona að þetta sé einskiptisuppákoma. Það er þó þannig að við verðum að læra af því sem þarna gerðist til að tryggja að svona fari ekki aftur, því að það sem gerist einu sinni getur alveg örugglega gerst aftur.
Ástandið á Reykjanesinu sem þessi framkvæmd var borin fram í var mjög snúið. Það þekkjum við öll sem fylgdumst með málum á þeim tíma og hv. þm. Ásmundur Friðriksson fór ágætlega yfir það áðan. Vinna fer af stað, samningar eru gerðir og því miður eflaust margir hverjir, eftir á að hyggja, á röngum forsendum. Ef við setjum annað fyrirtæki inn í myndina og tökum Sameinað sílikon út fyrir sviga í eitt augnablik geta það ekki orðið sjálfstæð rök í málinu, ástæða fyrir því að menn lenda í erfiðleikum með framvindu málsins, að fólk á svæðinu hafi nóg að gera allt í einu. Það getur ekki gengið þannig fram því að mörg stór verkefni taka langan tíma. Þeir sem vinna að slíkum verkefnum, setja fjármuni í þau og vinna að því að afla leyfa og þar fram eftir götunum verða að geta treyst því að það sé samfella og stöðugleiki í kerfinu sem þeir vinna innan. Ég vildi segja það því að þetta er staða sem getur komið upp úti um allt land. Ég ítreka að það geta ekki orðið rök í málinu að menn hafi allt í einu nóg að gera af því að túristinn mætti og makríllinn synti inn í landhelgina.
Annað sem mig langar að vekja máls á er umræðan sem virtist yfirtaka mjög umræðuna um stóriðju á landinu öllu fyrir nokkrum árum, en hún var um að álframleiðsla væri ægilega vond en hér um bil allt annað væri mjög gott. Ég vil segja það inn í þetta andrúm, og ég sagði það reyndar í ræðu minni fyrr í dag, að á Íslandi framleiðum við sennilega umhverfisvænasta ál í heimi, uppi á Grundartanga, á Reyðarfirði og úti í Straumsvík, og eigum að vera stolt af því. En einhvern veginn fór umræðan í þá átt að framleiða mætti hér um bil allt úr hinni góðu endurnýjanlegu og grænu orku okkar annað en ál. Ég held að við verðum að láta okkur þetta að kenningu verða, þ.e. að þarna höfðum við iðnað á þremur stöðum á landinu sem við þekktum vel og hafði staðið sig vel að flestu leyti en skyndilega fundum við okkur í þeirri stöðu að prófa mátti allt annað en það sem við þekktum. Það er varhugavert í sjálfu sér.
Eins og hv. þm. Oddný G. Harðardóttir reifaði áðan er málið í ferli hjá bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Ef ég skil málið rétt liggur þar fyrir tillaga um að farið verði í íbúakosningu og það er auðvitað í höndum heimamanna hvernig málinu vindur fram.
En leikreglurnar verða að vera skýrar. Nú eru komnir nýir eigendur að þessu fyrirtæki. Ef þeir leggja fram plön sem eru forsvaranleg gagnvart því að ná árangri þannig að öllum viðmiðum sé mætt og allar reglur uppfylltar held ég að varhugavert sé að skilja þá sem þar fara með mál núna eftir í þeirri stöðu að geta ekki hönd fyrir höfuð sér borið.
Ég held að það sé svo sem ágætisfarvegur að málið sé í höndum heimamanna. Fyrir liggja aðgerðaáætlanir um hvernig á að ná þessu fram ef verksmiðjan fær á annað borð að fara af stað aftur.
Ég vil að lokum leggja áherslu á að reglurnar verða að vera skýrar og það verður að liggja fyrir að fari menn eftir reglunum fái verkefni að komast áfram og þeim að vinda fram, en sömuleiðis ef menn brjóta allar reglur sem hægt er að brjóta og leggja fram rangar upplýsingar fái menn rækilega á baukinn fyrir það
Að endingu vil ég þakka fyrir umræðuna og held áfram að fylgjast með málinu af athygli.