149. löggjafarþing — 25. fundur,  25. okt. 2018.

aðdragandi að útgáfu starfsleyfis til kísilverksmiðju Sameinaðs sílikons hf. í Helguvík o.fl., munnleg skýrsla umhverfis- og auðlindaráðherra.

[12:39]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra fyrir yfirferðina og einnig ítreka þakkir mínar til hv. þingmanna sem óskuðu eftir þeirri skýrslu sem við ræðum hér í dag.

Mál United Silicon er ein samfelld sorgarsaga, en þó er það svo, eins og segir í laginu, að fátt er svo með öllu illt að ei boði gott. Nú gefst okkur tækifæri til þess að skoða aðdragandann aðeins, líta í eigin barm og vonandi, og ég segi vonandi, herra forseti, læra af þeim vítaverðu mistökum sem blasa við í þessu fordæmalausa máli.

Ég er í þeirri sérstöku stöðu að vera íbúi í Reykjanesbæ og þekki því til málsins frá mörgum hliðum. Í upphafi var kísilmálmverksmiðjan kynnt íbúum sem mikil lyftistöng fyrir laskað samfélag sem stóð höllum fæti í kjölfar brotthvarfs hersins og mikillar kreppu sem lagðist þungt á Suðurnesin. Vegna bágborinnar stöðu samfélagsins má leiða líkum að því að menn hafi verið ginnkeyptari fyrir gylliboðum. Staðan setti einnig gríðarlega mikinn þrýsting um störf, fjármagn, umsvif og arðbæra starfsemi á þessum tíma.

Í þessu sambandi vil ég sérstaklega taka fram að ég efast ekki um að þeir aðilar sem studdu verkefnið heima fyrir hafi gert það í góðri trú og viljað samfélagi sínu vel. En vinur er sá sem til vamms segir. Nú er deginum ljósara að þau viðvörunarmerki sem blikkuðu strax í byrjun hefðu átt að vekja alla aðila fljótlega til umhugsunar um hvort verið væri að stunda blekkingar gagnvart bæjarfélaginu, ríkisvaldinu og raunar samfélaginu öllu.

Vegna umfangs málsins gefst mér ekki tími til að fara nákvæmlega yfir þá þætti sem liggja fyrir í aðdraganda þess, en ég vil samt taka fram að íbúar á Suðurnesjum eru mjög uggandi í kjölfarið á þessu máli og eðlilegt að menn vilji stíga mjög varlega til jarðar varðandi stóriðjuframkvæmdir og þá sér í lagi varðandi það félag sem hefur tekið yfir þrotabú United Silicon í Helguvík.

Að því sögðu vil ég nefna að íbúar Reykjanesbæjar voru uggandi yfir starfsemi verksmiðjunnar frá upphafi. Málaferli hófust við verktaka byggingarinnar áður en verksmiðjan var reist og hnökrar komu strax í ljós á fyrstu dögum framleiðslunnar, sem brátt áttu eftir að vinda allverulega upp á sig. Sem íbúi vonaði ég það besta en hafði þó strax miklar efasemdir um nálægð verksmiðjunnar við byggð og þau áhrif sem möguleg mengun gæti haft á heilsufar íbúa. Strax fór ég að efast um hæfni þeirra sem voru við stjórnvölinn hjá United Silicon á þeim tíma og íbúar fóru fljótlega að finna fyrir mengun sem frá verksmiðjunni stafaði. Sjálfur hafði ég orðið var við þá lyktarmengun sem lagði yfir bæinn vegna framleiðslunnar og fylgdist ég því nokkuð náið með framvindu mála, sótti íbúafundi með forsvarsmönnum United Silicon og bæjarstjórn, rétt eins og fjölmargir bæjarbúar gerðu á þeim tíma.

Þó má segja að ákveðin þáttaskil hafi orðið 29. ágúst 2017, en það var þá sem ég varð fyrir verulegri mengun frá verksmiðjunni í fyrsta sinn. Ég vil vitna hér, með leyfi forseta, í hluta fésbókarfærslu minnar frá þeim degi, en þar segir:

„Í hádeginu í dag varð ég fyrir þeirri slæmu lífsreynslu að verða fyrir efnamengun. Brunalykt lagði yfir Reykjanesbæ. Þegar ég var staddur við Heiðarbrún í Keflavík gekk ég inn í verulegt mengunarský sem olli líkamlegum viðbrögðum sem helst minna á það þegar ammoníak eða sambærileg efni komast í tæri við vit manna. Mér varð flökurt og kúgaðist þannig að ég sá mér þann kost vænstan að taka til fótanna inn í næsta hús. Þar sat ég agndofa um stund og velti fyrir mér hvað í ósköpunum hefði komið fyrir mig. Ég hef fundið þessa lykt sem menn tala um sem kemur frá kísilverinu í Helguvík nokkrum sinnum, en aldrei hef ég fundið hana eins sterka og eins mengandi og í dag.“

Í lok færslunnar kallaði ég eftir því að Alþingi skipaði rannsóknarnefnd varðandi United Silicon og komist yrði til botns í því hvernig hægt væri að reisa að því er virtist ónýta kísilverksmiðju í túnfætinum í Reykjanesbæ. Mengunin frá verksmiðjunni var orðin óbærileg og hafði ég á þeim tímapunkti enn alvarlegri áhyggjur af áhrifum hennar á heilsu fólks og kallaði því eftir því að þingmenn mínir stæðu með íbúunum.

Ég vil taka það sérstaklega fram hér að það stóð alls ekki á þeim. Inn í þessa fésbókarfærslu mína tengdi ég þingmenn svæðisins. Kannski var það einn af fjölmörgum dropum sem fylltu mælinn á þeim tíma, en það var svo hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson sem svaraði kallinu og lagði fram beiðni um úttekt Ríkisendurskoðunar ásamt öðrum mætum þingmönnum. Kom sú skýrsla út í maí sl. og er einn allsherjaráfellisdómur yfir flestum þeim leikendum sem komu að málinu.

Mig langar rétt að fara yfir nokkur helstu mál sem að þessu snúa sem að mínu áliti standa svolítið upp úr. Ljóst er að ekki stóð steinn yfir steini í upplýsingagjöf forsvarsmanna United Silicon til ívilnananefndar á sínum tíma, auk þess sem ósamræmis gætti í upplýsingum þeirra til Íslandsstofu og nefndarinnar. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að hvorki hafi verið hægt að upplýsa nákvæmlega hverjir stjórnendur US Holding væru né United Silicon Holding sem áttu umtalsverðan hlut í verkefninu. Er það mat Ríkisendurskoðunar í skýrslunni að þessar upplýsingar hefðu átt að vekja athygli nefndarinnar og kalla á nánari skoðun. En ekkert varð úr því. Ég hef raunar ekki enn fengið upplýsingar um það hverjir þeir aðilar eru sem skipuðu þann 14 manna hóp. Það má vel vera að þær upplýsingar liggi á lausu, en ég hef ekki fundið þær enn. Mér finnst skipta verulegu máli að það liggi fyrir hverjir eigendur voru í þessum harmleik. Þeirra ábyrgð er mikil. Þrátt fyrir það að upplýsingarnar hafi verið í besta falli vafasamar fær hópurinn samt ívilnunarsamning við ríkið, sem er nokkuð sem ekki gerist á hverjum degi. Þessi framvinda málsins hafði að mínu mati veruleg áhrif á framhaldið.

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir, með leyfi forseta:

„Þá gefur ríkisstjórnin þau fyrirheit í 11. gr. samningsins að gera allar ráðstafanir sem nauðsynlegar eru til þess að tryggja að félagið njóti allra réttinda og ávinnings sem leiða af samningnum og að engar ráðstafanir verði gerðar sem gætu haft neikvæð áhrif á framkvæmd verkefnisins eða starfsemi félagsins í tengslum við það.“

Það eru ansi stór orð að mínu áliti, herra forseti. Hvað þýðir þetta eiginlega? Engar ráðstafanir verði gerðar sem geta haft neikvæð áhrif á framkvæmd verksins eða starfsemi félagsins í tengslum við það? Ég held að það sé óhætt að taka hér fram varðandi þennan þátt að á þessum tíma var félagið ekki búið að fá leyfi frá Vinnueftirliti. Það væri ekki búið að fá endanlegt leyfi frá Umhverfisstofnun. Það var bara búið að fjármagna verkefnið að hluta. Því velti ég fyrir mér hvaða áhrif þessi ívilnunarsamningur ríkisins hafi haft.

Hópur lífeyrissjóða tók þátt í fjármögnun verkefnisins og varð fyrir fjárhagslegum skaða. Á aðalfundi Frjálsa lífeyrissjóðsins sem haldinn var 30. maí sl. kom fram í máli stjórnarformanns um skýrslu stjórnar, með leyfi forseta:

„Þegar menn velta fyrir sér hversu hrapallega fór með fjárfestinguna í United Silicon þá er ekki úr vegi að horfa á reynsluna af stóriðjuverkefnum á Íslandi. Deilur hafa vissulega risið um verkefnin gegnum tíðina en samningar og skuldbindingar hafa staðist. Þess vegna er United Silicon næsta einstakt í sinni röð. Á það hefur verið bent að grafast hefði mátt fyrir um viðskiptasögu þeirra sem stóðu að United Silicon. Það er þó ekkert einhlítt viðmið enda var verið að fjalla um félag sem á pappírunum naut trausts alþjóðlegra viðskiptaaðila og hafði leyfi, vottorð og fjölda ívilnana frá opinberum aðilum.“

Enn fremur er spurt í skýrslu stjórnar hvort þeir aðilar og stofnanir sem treyst var á í ferlinu hafi staðið fyllilega undir skyldum sínum og þeirri ábyrgð sem þeir eiga að standa undir.

Ég velti því fyrir mér hvort þessi ívilnunarsamningur hafi gefið verkefninu meiri trúverðugleika en það átti raunverulega skilið.

Þess má geta að Frjálsi lífeyrissjóðurinn fjárfesti í United Silicon fyrir 1.200 millj. kr. Það fé er tapað.

Þegar rætt er um beinan og óbeinan kostnað af United Silicon klúðrinu er ljóst að beinn fjárhagslegur skaði af verkefninu fyrir Reykjanesbæ er verulegur, hleypur á milljörðum til lengri tíma. Reykjaneshöfn var skuldsett upp í rjáfur, en inni í þeirra plönum var að sjálfsögðu fjármagn vegna umsýslu- og hafnargjalda vegna United Silicon. Staða hafnarinnar er nú í miklu uppnámi. Höggið fyrir samfélagið er mikið. Laun United Silicon áttu að vera hærri en í sambærilegum störfum. Gefin voru loforð sem í flestum tilvikum voru brotin. Meira að segja lóðarleigugjöld í upphafi voru ekki greidd til sveitarfélagsins. Þau eru töpuð upp á 200 millj. kr. Þetta félag náði ekki einu sinni að greiða laun þegar það fór í þrot.

En gleymum því ekki að starfsemi United Silicon var stöðvuð vegna mengunar. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar er farið ansi vel yfir þá þætti. Mig langar að koma inn á einn þátt sem ég hef átt erfitt með að skilja og það er varðandi mælingu og mengun. Það kemur fram hjá sóttvarnalækni að mögulega séu svokölluð aldehýðefni ástæðan fyrir helstu menguninni sem fólk varð vart við. Það samrýmist svolítið mínum eigin upplifunum.

United Silicon gerði úttekt sem erlendir aðilar voru fengnir til að gera á mengun frá verksmiðjunni og þar kom eftirfarandi í ljós, með leyfi forseta. Ég ætla að fá að svissa yfir á erlendri tungu rétt undir lokin:

„Over all the concentration levels of the compounds found were quite low. However, trioxane, which is a polymerization product of formaldehyde, is present in the sample which indicates higher concentration of formaldehyde which is not covered by measurements technics used.“

Þetta þýðir að mögulega var þarna um mengun að ræða sem tæki og tól sem upphaflega átti að vera til staðar mældu aldrei. Það þýðir, virðulegur forseti, (Forseti hringir.) að upplýsingar sem komu frá Umhverfisstofnun og fyrirtækinu trekk í trekk um að mengun væri undir losunarmörkum voru einvörðungu vegna þess (Forseti hringir.) að mælitækin mældu ekki rétta mengun eða tegund. (Forseti hringir.)

Nú er ég kominn yfir tímann. (Forseti hringir.) Þetta er stórt mál. (Forseti hringir.) Látum United Silicon málið (Forseti hringir.) okkur að kenningu verða.