149. löggjafarþing — 25. fundur,  25. okt. 2018.

aðdragandi að útgáfu starfsleyfis til kísilverksmiðju Sameinaðs sílikons hf. í Helguvík o.fl., munnleg skýrsla umhverfis- og auðlindaráðherra.

[13:54]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Eins og greina má af lestri umræddra skýrslna um Sameinað sílikon var mjög þarft að taka þetta mál til skoðunar og vil ég þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson og þeim þingmönnum sem óskuðu eftir skýrslu frá ráðherra fyrir það frumkvæði. Sérstaklega mikilvægt var þó að fá Ríkisendurskoðun til starfans. Vil ég þakka þingmönnum jafnframt fyrir umræðurnar í dag sem hafa verið mjög góðar.

Ég held að ljóst sé að þessi verksmiðja verður ekki opnuð aftur nema með umtalsverðum breytingum eins og fram kemur í lokaorðum skýrslu minnar til Alþingis. Mikilvægt er að læra af þeirri reynslu sem hér hefur skapast varðandi alla mengandi starfsemi og eru báðar þessar skýrslur mikilvægar í því sambandi. Við verðum sífellt að vera vakandi fyrir því að bæta það sem betur má fara, læra af fenginni reynslu og koma í veg fyrir að áður gerð mistök endurtaki sig.

Umhverfisstofnun hefur þegar nýtt reynsluna við útgáfu starfsleyfis PCC á Bakka, sem er jákvætt. Þá er þegar hafin vinna við að bæta úr annmörkum þeim sem Ríkisendurskoðun hefur bent á og ég mun fylgja því máli eftir. En við getum lært umfram þetta. Við þurfum sem samfélag t.d. að hætta að staðsetja mengandi starfsemi í næsta nágrenni íbúðabyggðar líkt og hér var gert, líkt og hugmyndir eru uppi um víðar um land, t.d. jarðvarmaorkuver í Bjarnarflagi í Mývatnssveit. En auðvitað er mikilvægast fyrir okkur að hverfa frá frekari mengandi stóriðju hérlendis. Ég þakka kærlega fyrir umræðuna.