umboðsmaður Alþingis.
Frú forseti. Þetta mál er gríðarlega mikil réttarbót fyrir grundvallarmannréttindi fólks, að verða ekki fyrir ómannúðlegri meðferð eða pyndingum, og eru Píratar hæstánægðir að sjá frumvarpið verða að veruleika enda með fókusinn á þessi grunnréttindi, borgararéttindi, þar sem þessi réttindi eru náttúrlega í fararbroddi. Rétturinn til að vera varin gegn pyndingum og ómannúðlegri meðferð er eiginlega síðasta hálmstráið fyrir það að geta varið borgararéttindi og lýðræðislegt samfélag.
Málið er aftur á móti miklu víðtækara. Fólk í okkar samfélagi getur þurft að þola ómannúðlega meðferð og pyndingar eins og það er í dag. Það er það fólk sem er frelsissvipt. Hér á að taka á því að ríkið hafi virkt eftirlit með því að ekki sé farið með fólk sem er frelsissvipt á ómannúðlegan hátt og það pyndað. Umboðsmanni Alþingis er með frumvarpinu falið að sinna því eftirliti.
Frumvarpið er flutt af forseta Alþingis og öðrum okkar sem eigum sæti í forsætisnefnd þingsins og málið mun ganga til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar til vinnslu. En það er eitt sem stendur út af og ég ætla að nefna hér í ræðu minni. Nefndir Alþingis hafa ályktað um það og umboðsmaður Alþingis hefur ítrekað upplýst Alþingi um áhyggjur sínar af réttaröryggi borgaranna gagnvart stjórnsýslu dómstólanna, sem er skrifstofa dómstólanna eða þeir sem sjá um skriffinnskuna. Hún neitar ítrekað að svara óskum umboðsmanns um upplýsingar um möguleg brot gegn borgurum landsins. Eftir að hafa rannsakað þetta í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og fylgst með því sem hefur verið uppljóstrað af fyrrum dómurum og fyrrverandi framkvæmdastjóra dómstólasýslunnar verður ekki betur séð en að þessi skrifstofa dómstólanna geti brotið bæði á borgurum landsins og sjálfum dómurunum án þess að sæta ábyrgð.
Bæði allsherjarnefnd Alþingis, sem fjallar um dómsmálin, og eftirlitsnefnd, sem hefur eftirlit með að lögum sé framfylgt, hafa tekið undir þessar ítrekuðu áhyggjur umboðsmanns Alþingis. Í bréfi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar frá 2016 segir, með leyfi forseta:
„Að mati nefndarinnar er mikilvægt að bregðast við ábendingum umboðsmanns Alþingis.“
Og í nefndaráliti allsherjar- og menntamálanefndar, með breytingum á lögum um dómstóla 2016, segir, með leyfi forseta:
„Telur nefndin rétt að breyta lögum um umboðsmann Alþingis á þann veg að eftirlit með nefnd um dómarastörf og stjórnsýslu dómstólanna verði á hendi umboðsmanns Alþingis.“
Þar kemur fram að verið sé að vinna að uppfærslu á lögum um umboðsmann Alþingis og að þessi breyting eigi heima inni í þeirri breytingu. Nú er stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að fara að fá þetta frumvarp. Við höfum aðeins imprað á þessu í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og það er eitthvað sem við getum þá gert þar, að laga það sem umboðsmaður hefur ítrekað kallað eftir og fyrrum dómarar bent á. Því að fyrrum dómarar og framkvæmdastjóri dómstólaráðs, sem heitir núna dómstólasýslan, en það er æðsta úrskurðarvald skrifstofu dómstólanna, hafa komið fram opinberlega og ljóstrað upp um misbeitingu opinbers valds gegn dómurum. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd er með gögn um öll þau ætluðu brot í sínum fórum.
Grundvöllur réttarríkisins er náttúrlega að vald þarf að sæta ábyrgð. Þar að auki þurfa síðan dómstólar sjálfstæði til að geta verið hlutlausir í dómum sínum. Það er grundvöllurinn. En dómsvaldið er í höndum dómaranna og þegar skrifstofa dómstólanna kemst upp með að brjóta á dómurum eru dómarar ekki sjálfstæðir. Þetta er lykilatriði.
Forsætisráðherra hefur lýst því yfir að frumvarp hennar um upplýsingalög muni ná yfir stjórnsýslu dómstólanna, þessa skrifstofu dómstólanna, en í dag þarf þessi skrifstofa dómstólanna ekki að fylgja upplýsingalögum, ekki stjórnsýslulögum, ekki persónuverndarlögum og ekki jafnréttislögum.
Tíðarandinn á Vesturlöndum eftir hrunið er vantraust á valdhafa. Nýlegar kannanir sýna að traust til lýðræðis hefur hrunið líka. Þeir sem vilja efla lýðræðið og réttarríkið hafa ekki efni á því að standa í vegi fyrir því að eftirlit með stjórnsýslu dómstólanna sé nógu virkt til að hún komist ekki upp með að brjóta á borgurum, dómurum landsins, án þess að slík brot séu að lágmarki rannsökuð og upplýst af hlutlausum og sjálfstæðum aðila.