149. löggjafarþing — 25. fundur,  25. okt. 2018.

umboðsmaður Alþingis.

235. mál
[16:40]
Horfa

Flm. (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður kemur inn á mál sem oft hefur verið rætt í þessu samhengi og hefur vissulega verið skoðað. En niðurstaðan í frumvarpinu er að taka á þeim þætti sem snýr í raun og veru að samningsskuldbindingum Íslands gagnvart OPCAT-bókuninni og innleiðingu þess, svo að við komum því óháða eftirliti þannig fyrir að það standist allar kröfur og setjum viðeigandi ákvæði, t.d. um vernd uppljóstrara.

Reyndar er gengið lengra hér en við þyrftum nauðsynlega að gera til að uppfylla þau ákvæði, þ.e. þetta er útvíkkað yfir alla starfsemi umboðsmanns. Hins vegar er ekki farið inn á önnur svið að þessu sinni, hvort sem það væri að umboðsmaður fengi hlutverk sérstaklega gagnvart eftirliti með stjórnsýslunni í dómstólunum eða annað slíkt. Þau mál eru öll í skoðun, varðandi bæði stjórnsýsluhluta Alþingis, stjórnsýsluhluta dómstólanna og hvort, hvenær og hvernig þeir þættir verða felldir undir stjórnsýslulög, upplýsingalög og þá væntanlega undir persónuverndarlög og ákvæði nýju reglugerðarinnar eða tilskipunarinnar þar.

Af okkar hálfu er þegar kominn starfshópur í gang sem snýr að stjórnsýslu Alþingis, þótt í reynd hafi menn litið svo á að eftir því sem kostur væri yrði starfað í samræmi við það að stjórnsýsluþættirnir færu samkvæmt stjórnsýslulögum og upplýsingalögum. Þannig hefur það í reynd verið að þróast á undanförnum árum. Það er því kannski ekki mikill munur á hvort það verði gert formlegt með lögum eða ekki.

En niðurstaðan varð engu að síður þessi og hefur enn sem komið er verið það og nú eru þau mál í skoðun á vettvangi Stjórnarráðsins, þ.e. hjá forsætisráðuneytinu.

Mér er nokkuð í mun, þó að ég hafi fullan skilning á þeim sjónarmiðum, að ekkert slíkt verði til að tefja það að við klárum (Forseti hringir.) þessa nauðsynlegu lagasetningu þannig að við getum fullgilt bókunina og komið eftirlitinu af stað gagnvart öllum sem í hlut eiga. Helst þurfum við að gera það fyrir áramót.