40 stunda vinnuvika.
Frú forseti. Gæti hugsanleg skýring á því hvað þetta tekur langan tíma í samskiptum aðila vinnumarkaðarins að einhverju marki verið að málið er flóknara en það að ákveða einn, tveir og þrír að stytta vinnutíma um einhverjar tilteknar stundir?
Það er rétt sem hv. flutningsmaður segir, þetta hefur verið viðfangsefni og um það er vaxandi krafa eða vaxandi umræða skulum við í það minnsta segja. Ég held að það sé algjörlega hárrétt hjá hv. flutningsmanni. En maður hlýtur samt um leið að spyrja sig, ef það er rétt sem hv. flutningsmaður nefndi, að vinnuveitendur hafi tilhneigingu til að sópa þessu fyrst út af borðinu, sem ég hef ekki nema orð hv. flutningsmanns fyrir: Hvernig stendur þá á því að samtök eins og Alþýðusambandið, sem eru langstærstu launþegasamtök landsins, stökkva ekki á þennan vagn og segja: Ja, nú er fullreynt. Við munum aldrei ná þessu í gegn nema löggjafinn komi að? Sambandið leggst eindregið gegn því í umsögn sinni að Alþingi grípi inn í þetta mál þannig að ég er ekki alveg viss um að skýringar hv. flutningsmanns á því standist að því leyti. Þá hefði ég haft tilhneigingu til að trúa því að stór launþegasamtök myndu óska eftir hjálp löggjafans við að ná þeirri kröfu sinni fram, en það er ekki raunin.