149. löggjafarþing — 25. fundur,  25. okt. 2018.

búvörulög og búnaðarlög.

17. mál
[19:21]
Horfa

Þórunn Egilsdóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það kemur margt upp í hugann við lestur þessa frumvarps. Til að byrja með velti ég helst fyrir mér spurningunni: Hvers vegna í ósköpunum er flutningsmanni svo uppsigað við sameiginlega samningsgerð bænda? Hvað er það sem fær menn til að láta þetta líta svo út að þeir vilji helst brjóta niður félagskerfi landbúnaðarins og etja bændum saman?

Markmiðið er að auka frelsi og sjálfræði framleiðenda búvara til markaðssetningar á afurðum sínum á innlendum og erlendum markaði. Til að ná því fram vill Viðreisn fella úr núverandi lögum að kjör þeirra sem landbúnað stunda verði í samræmi við kjör annarra stétta. Þess í stað vilja flutningsmenn að bændur keppi á frjálsum markaði. Í rauninni verður samningsfyrirkomulagið lagt niður og Bændasamtökin geta einungis samið fyrir hönd bænda sem kjósa að vera aðilar að Bændasamtökunum. (Forseti hringir.) Á að ganga til samninga við hvern og einn bónda eða hvernig ætla menn að gera þetta? Geta menn stofnað samtök stórra framleiðenda (Forseti hringir.) á Suðurlandi o.s.frv.?