búvörulög og búnaðarlög.
Virðulegi forseti. Hér er komið fram mjög áhugavert frumvarp sem snýr að því, eins og segir í greinargerðinni, að auka frelsi og sjálfræði framleiðenda búvara til markaðssetningar á afurðum sínum á innlendum og erlendum mörkuðum. Í því felst m.a. að afnema sérreglu búvörulaga sem gildir um mjólkuriðnaðinn og draga úr afskiptum ríkisvaldsins af verðlagningu, framleiðslu og vinnslu búvara.
Samt skal taka allan ákvörðunarrétt af samtökum bænda og færa hann til ráðherra. Hvar er það frelsi? Í hvaða frelsi er verið að sækja?
Í annan stað — þetta er svo fljótt að líða — langar mig að spyrja flutningsmenn hvað merkingu þeir leggi í markaðsráðandi afurðastöð, eins og segir í 10. gr. frumvarpsins. Verður til einhver slík afurðastöð og hver eru þá mörkin?