búvörulög og búnaðarlög.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir svörin. En þá langar mig til að halda áfram. Samkvæmt þessu verður verðlagning búvara gefin frjáls og þá getur hvert og eitt bú væntanlega samið um afurðaverð. Hvernig er þá með ríkisstuðninginn? Ætla flutningsmenn frumvarpsins, ráðherra, að semja við hvern framleiðanda um ríkisstyrk eða skal eitt yfir alla ganga í þeim efnum? Eða ætla þeir að leggja ríkisstyrkinn af?
Við erum með örmarkað hér í framleiðslu og þó að allt frelsi verði veitt til að keppa á alþjóðlegum markaði er veltan á íslenska mjólkurmarkaðnum um 24 milljarðar en það fyrirtæki sem vermir 10. sæti meðal afurðafyrirtækja mjólkuriðnaðarins í heiminum er á pari við íslenska ríkið í veltu. Þá er spurning hvernig íslenskir bændur eiga að nýta sér það frelsi og fóta sig í því umhverfi erlendis t.d. eða (Forseti hringir.) hérlendis þegar það verður komið á íslenska markaðinn.