búvörulög og búnaðarlög.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Ágústi Ólafi Ágústssyni fyrir innblásna og öfluga ræðu. Þarna er nú góður liðsmaður mættur til liðs við okkur bændur, heyrist mér, í þeirri umræðu þó að aðeins þurfi að skóla hann til. En við erum ekki alveg sammála, við skulum orða það þannig.
Aðeins til upplýsingar varðandi tómata, gúrkur og paprikur, svo rétt sé farið með, er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að tollar voru afnumdir en á móti komu ýmsar tilslakanir og auk þess voru þeim bændum borgaðar beingreiðslur, bara svo það sé haft á hreinu.
Síðan vil ég minna á að þegar menn tala um opinbera verðlagningu og hitt og þetta er einungis verið að ræða þar um mjólkurvörur. Menn mega ekki blanda saman afurðastöðvum í mjólkuriðnaði og kjötiðnaði. Það er tvennt ólíkt. Ég kem betur að því á eftir í næsta andsvari.