búvörulög og búnaðarlög.
Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir svarið. Menn hlaupa til og frá með það hvort þeir vilji styðja landbúnaðinn eða ekki styðja og hefur komið fram að menn vilji styðja hann með einhverjum öðrum hætti en gert er í dag. Gott og vel. Menn tala hér endalaust um tolla, en það væri gott fyrir menn ef þeir áttuðu sig á því á hverju tollverndin liggur. Hvar liggur hún? Þá væri líka ágætt að menn áttuðu sig einnig á því á hvaða vöruflokkum það er. Ég veit að hv. þm. Ágúst Ólafur Ágústsson er með þetta í tölvunni fyrir framan sig og getur uppfrætt okkur um það hvar tollarnir liggja vegna þess að þeir liggja ekki á öllum landbúnaðarvörum.